Skírnir - 01.01.1957, Síða 175
Skírnir Heilbrigðiseftirlit í skólum og kvillar skólabarna
173
frumheimildir, skólaskoðunarskýrslur lækna, en sú rannsókn
hefði tekið of langan tíma og auk þess óvíst, hve mikið hefði
orðið á henni að græða.
I.
Árið 1907 voru sett fyrstu lög um skólaskyldu á íslandi.
Áður hafði raunar verið nokkur fræðsluskylda í landinu, en
með lögum þessum hefst almenn skólaskylda barna á aldrin-
um 10—14 ára. 1 lögunum er landinu skipt í skólahéruð og
fræðsluhéruð. Til skólahéraða töldust kaupstaðir, kauptún og
þorp, sem voru sérstakur hreppur, og enn fremur hreppar,
sem komu á fót föstum skólum. Skólahéruðum var skylt að
halda skóla 6 mánuði á ári, en í fræðsluhéruðum skyldu
vera farskólar og börnunum kennt 8—12 vikur á vetri. Síðan
lög þessi voru sett, hefir skólaskylda smám saman verið aukin
og árlegur starfstími skóla lengdur. Árið 1926 var í lögum
um fræðslu barna veitt heimild til að færa skólaskyldu niður
í 7 ára aldur. Við endurskoðun laganna árið 1936 voru öll
börn gerð skólaskyld á aldrinum 7—14 ára og árlegur skóla-
tími lengdur nokkuð, og árið 1946 voru loks sett fræðslulög
þau, sem nú eru í gildi. Samkvæmt þeim eru öll börn skóla-
skyld á aldrinum 7—15 ára. Skólar í kaupstöðum og þorpum
með 1000 íbúa eða fleiri skulu starfa sem næst 9 mánuði á ári,
en aðrir heimangöriguskólar og heimavistarskólar eigi skemur
en 7 mánuði á ári, svo fremi að barnafjöldi leyfi. 1 sveitum
er þó heimilt að skipta námstímanum í tvennt þannig, að
hvert harn fái a. m. k. 3*4 mánaðar kennslu á vetri. Lög um
héraðsskóla voru sett árið 1929, lög um gagnfræðaskóla árið
1930 og lög um gagnfræðanám árið 1946.
1 fyrstu fræðslulögunum voru engin ákvæði um heilbrigðis-
eftirlit í skólum, og var þó þá þegar komin allföst skipan á
slíkt eftirlit í borgum Norðurlanda. Lítillega er þó minnzt
á hollustuhætti í lögunum, og segir þar: „Reglugerð um fyrir-
komulag og hollustuhætti skólans skal samin af skólanefnd
og liggur undir samþykki yfirstjórnar fræðslumála,“ og enn
fremur, að skólanefnd skuli hafa „umsjón með húsum skól-
ans og annast um, að herbergi þau, sem höfð eru til kennslu,