Skírnir - 01.01.1957, Blaðsíða 202
200
Benedikt Tómasson
Skírnir
Tölumar á töflunni em hundraðstölur. Árið 1925 var að-
eins einn harnaskóli í Reykjavik, en skólaárið 1954—55 eru
birtar tölur úr fimm stærstu skólum borgarinnar.1) Til sam-
anburðar em birtar tölur úr bamaskólum Kaupmannahafnar
(K) og Hróarskeldu (H). Þess er þó rétt að geta, að dönsku
tölurnar eiga við börn frá 7—14 ára, en íslenzku tölurnar við
börn frá 7—13 ára. Tölurnar frá Khöfn eiga einungis við
drengi, og þótti óþarft að birta líka tölur um stúlkur, með
því að hvergi er um teljandi mun að ræða, nema á litblindu
(stúlkur 0,71). Tölurnar frá Hróarskeldu eiga bæði við drengi
og stúlkur, nema um litblindu, sem á einungis við drengi
(stúlkur 0,15). Dönsku tölurnar eiga ekki allar við nákvæm-
lega hið sama og hinar íslenzku: Engin sérstök grein er gerð
fyrir stækkuðum kverklum, heldur eru sjúkdómar í munni,
koki og nefi taldir undir eitt. Um annan mun er óþarft að
geta. Skal nú gerð nokkur grein fyrir þeim kvillum, sem
skráðir em í töflunni.
Beinkröm er aðallega sjúkdómur í ungbörnum, stafar lang-
oftast af skorti á D-fjörvi og lýsir sér í því, að kalk sezt ekki
í beinin á eðlilegan hátt, en af því leiðir, að þau bogna eða
aflagast öðm vísi. Svæsin beinkröm í ungbörnum kemur nú
örsjaldan fyrir, ef þau fá rétta meðferð, og beinkröm í skóla-
bömum er mjög fátíð, a. m. k. í þeim mæli, að í ljós komi
við venjulega læknisskoðun (án röntgenmyndunar). Hins
vegar geta menn borið alla ævi merki afstaðinnar beinkramar,
og mun aðallega eða eingöngu um slík einkenni að ræða í
börnum þeim, sem talin em hafa beinkröm í skoðunarskýrsl-
um skólalækna. Ekki ber læknum vel saman rnn það, hvað
teljast skuli beinkramareinkenni. Á töflunni sker skóli IV sig
algerlega úr um þetta, og kemur ekki til greina önnur ástæða
fyrir því en ólíkt mat. Augljóst er líka, að um lítilfjörleg ein-
kenni er að ræða á þessum bömum, þar sem ekkert þeirra
hefir bogna fótleggi samkvæmt skýrslu læknisins. Er boginna
fótleggja raunar aðeins getið á 41 barni í Reykjavík, og eru
þau öll úr skóla V. Greining skólalækna mun því í lang-
1) Tölumar em teknar úr skýrslum skólalækna, en ekki Hbs.