Skírnir - 01.01.1957, Qupperneq 159
Skírnir
Þorleifur lögmaður Kortsson
157
svo á klaustrinu að sjá um fæði og húsnæði handa presti og
djákna og borga hinum fyrrnefnda nokkurt kaup til viðbótar
því, sem honum bar að öðru leyti af sókn sinni6).
Eftir þeim fáu lieimildum að dæma, sem til eru, hefir Þor-
leifi farizt klausturhaldið sómasamlega úr hendi, bæði gagn-
vart konungi og leiguliðum, þegar tekið er tillit til þeirra
venja, sem þá giltu. Kemur það greinilega fram í Jarðabók
Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, að mjög hefir landset-
um Þingeyraklausturs þótt bregða til hins verra, er eftirmað-
ur Þorleifs, Lárus Gottrúp, hafði tekið þar við, þótt vitanlega
verði að hafa það í huga, að Gottrúp var af öllum talinn með
afbrigðum harðdrægur. Reyndar eru líka til góðar heimildir
um það, að Þorleifur hafi verið maður fégjarn, en jafnframt,
að hann hafi verið gæflyndur og óáleitinn við aðra. „Vitur
maður, ljúfur og spakferðugur“, segir Oddur Eiríksson um
hann í Fitjaannál7). Af úttektarbréfi Þingeyraklausturs
16848), er Þorleifur skilaði klaustrinu af sér í hendur Gott-
rúps, er þó auðséð, að hann hefir ekki þótt halda við húsa-
kynnum þar sem skyldi, og varð hann að greiða rúm 80 hundr-
uð á landsvísu (um 80 kýrverð) fyrir niðurniðslu á húsum
og kirkju. En í því sambandi verður að minnast þess, að þá
var Kristófer Heidemann nýlega orðinn landfógeti og þótti
allröggsamur um þetta leyti. Gerði hann til dæmis af sömu
ástæðum klausturhaldara Möðruvallaklausturs að greiða álika
upphæð í reiðufé og klausturhaldara Munkaþverár, sem einn-
ig var sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu, enn meira, jafnframt
því sem hann lét dæma hann bæði frá sýslu og klaustur-
umboði.
Ári áður en Þorleifur tók við Þingeyraklaustri, eða 1662,
varð hann lögmaður norðan lands og vestan eftir Magnús
Björnsson á Munkaþverá. Segir svo um þetta í alþingisbók
þess árs: „Á almennilegu Öxarárþingi var sá æruverði heið-
ursmann, Þorleifur Kortsson, eftir gerða kristilega bæn, kos-
inn eftir kjöri og hlutfalli til lögmanns fyrir norðan og vest-
an á fslandi, og það með almennilegu lófataki, í þeirri full-
komnu von, að konungleg majestat gefi þar til sitt konung-
lega samþykki, að staðfesta fyn-nefndan Þorleif Kortsson til