Skírnir - 01.01.1957, Page 178
176
Benedikt Tómasson
Skírnir
hætta búin af veru þar, og ef um farskóla er að ræða, þá
að á heimilinu, þar sem skólinn er haldinn, sé eigi fyrir
berklaveiki eða annar smithættulegur sjúkdómur,
2. að kennarar, eða eftirlitsmaður með heimafræðslu, gangi
ekki með smitandi berklaveiki, holdsveiki eða aðra viðloð-
andi smitandi sjúkdóma,
3. að böm og unglingar með smithættulega sjúkdóma séu eigi
tekin í skóla með öðrum eða vistuð í heimavistarskólum.
Þetta eftirlit hefir stjórnarráðið ákveðið í samráði við land-
lækni og fræðslumálastjóra sakir hinnar augljósu hættu, eink-
um berklahættu, er heilbrigði þjóðarinnar stendur af barna-
og unglingafræðslunni . .
1 auglýsingu sinni birtir landlæknir bréf stjórnarráðsins og
auk þess örstuttar leiðbeiningar, aðallega um það, hverjar
kröfur verði að gera til skólahúsnæðis, sérstaklega á farskóla-
stöðum, en einnig ákvæði um greiðslu fyrir eftirlitið. Um
skólahúsnæði segir hann, að verði „að minnsta kosti að krefj-
ast þess, aS kennt sé í sérstöku herbergi, ekki innan um fólk-
ið í baðstofunni, r/ð kennslustofan sé svo rúmgóð, að öll hörn-
in geti setið, aS stofan sé rakalaus, ofn í henni og gluggar á
hjörum og gólfið svo, að gerlegt sé að halda því hreinu“.
Hann brýnir og fyrir læknum „að vinna að því af öllu megni,
að jafnan séu valin beztu heimilin í hverri sveit til farskóla-
halds . .
Við því hefði mátt búast, að í framhaldi af stjórnarráðs-
bréfinu og auglýsingu landlæknis hefðu læknum verið gefn-
ar leiðbeiningar um, hvernig eftirliti með heilsufari skóla-
barna skyldi hagað í framkvæmd. Af fyrirmælunum verður
ekki einu sinni ráðið, hvort ætlazt sé til, að öll skólabörn skuli
skoðuð, áður en skólar hefjast, eða einungis þau börn, sem
grunsamleg þættu. Læknum þóttu fyrirmælin óljós, og kvört-
uðu sumir undan því í Lb. Einn héraðslæknir, Sigurður Magn-
ússon á Patreksfirði, ritaði allharðorða ádeilugrein, er hann
kallar Nýjasta skólafarganiS. Segir hann að vísu ekki bein-
um orðum, að eftirlit með skólum sé óþarft, en telur eftirlit,
sem að gagni komi, óframkvæmanlegt. Um mótmæli frá öðr-
um læknum er mér ekki kunnugt. Tilhögun á greiðslu varð