Skírnir - 01.01.1957, Blaðsíða 185
Skírnir Heilbrigðiseftirlit í skólum og kvillar skólabarna 183
hvort um sé að ræða vansköpun eða bæklun, útbrot á húð,
svo og hvernig það ber sig á velli, hvort það er beint eða bog-
ið í baki. Athugað er, hvort lús eða nit finnst í hári og hvort
um sé að ræða auðsæja vanhirðu frá heimilisins hálfu. Litið
er í augu til að skyggnast eftir hólgusjúkdómum eða öðru
athugaverðu sjáanlegu. Taldar eru skemmdar og úrdregnar
tennur, og kverklar (kokeitlar) skoðaðir til að aðgæta, hvort
þeir séu óeðlilega stórir eða skemmdir. Athugað er, hvort
barnið andar með nefi eða munni, en munnöndun er venju-
lega einkenni um stækkaðan kykil (nefkokseitil) eða stíflu í
nefi. Þuklað er um eitla á hálsi og víðar, ef ástæða þykir til.
Litið er á brjóstgrind með beinkramareinkenni í huga og gætt
að framstæðum eða signum öxlum og útstæðum herðablöð-
um, sem eru einkenni um lélega þroskun vöðva. Á kvið er
skyggnzt eftir örum og kviðsliti. Hryggur er skoðaður til þess
að ganga úr skugga um, hvort hann sé skakkur til hliðar og
hvort beygjur hans fram og aftur séu hæfilegar. Hjarta er
hlustað og lungu sömuleiðis. Á fótum er gætt að ilsigi og
hvort fótleggir séu beinir eða bognir. Sjón og heyrn er prófuð,
og er það ein mikilvægasta rannsókn á skólabarni. Nemendur
eru vegnir og mældir, sums staðar jafnvel 2—3 sinnum á vetri,
en ekki eru til þess tæki í nærri öllum skólum. Nauðsynlegt
er, að læknir geri sér grein fyrir málfari barnsins og glöggvi
sig á andlegum þroska þess eftir föngum. Að öðru leyti en
því, sem nú hefir verið lýst, fer skoðun eftir tilefni hverju
sinni. Sums staðar erlendis er gerð þvagrannsókn, en hér á
landi því aðeins, að lækni þyki ástæða til.
Þar sem kostur er á læknisþjónustu allan veturinn, fylgist
skólalæknir með heilsufari barna, sem eitthvað hefir fundizt
að við aðalskoðun, svo og nemenda, sem kennarar eða hjúkr-
unarkona kunna að koma á framfæri við lækni.
1 flestinn kaupstöðum eru notuð heilsufarsspjöld, og er
hverju bami þá ætlað eitt spjald. Á þau em skráðar upplýs-
ingar um heilsufar barnsins og niðurstöður skólaskoðana, svo
og sjúkdómar, sem börnin kunna að fá, meðan þau em í
skóla. I Reykjavík a. m. k. er það orðin föst venja, að annað-
hvort foreldra, venjulega móðir, fylgi bami sínu til skoðunar