Skírnir - 01.01.1957, Side 183
Skírnir
Heilbrigðiseftirlit í skólum og kvillar skólabarna
181
II.
Skýrslur um skólaeftirlit bárust laudlækni mjög slitrótt
framan af, og er ekki að sjá, að á því hafi orðið mikil breyt-
ing, eftir að hann birti auglýsingu sína árið 1921. Flest árin
fram til 1930 virðist vanta skýrslur úr um það bil helmingi
héraða og stundum fleiri, og skýrslur úr öllum héruðum bár-
ust fyrsta sinn árið 1936. Rétt er að geta þess, að engar skýrsl-
ur bárust úr Reykjavík frá 1928—35, að báðum árum með-
töldum. Af þessu leiðir, að engin tök eru á að gera sér grein
fyrir því, hvernig læknar hafa almennt rækt eftirlitið framan
af, og með því að ekki var við nein ákveðin fyrirmæli að
styðjast, mun hafa verið harla lítið samræmi í framkvæmd
þess, en hver farið þar að eigin geðþótta. Skilyrði til eftirlits,
sem því nafni mætti nefna, hafa líka verið allmisjöfn, en alls
staðar erfið utan kaupstaða og þó vitaskuld erfiðust í strjál-
býlum, víðáttumiklum læknishéruðum, þar sem fara varð
allar ferðir á hestum og stundum jafnvel fótgangandi. Einnig
er ljóst, að skoðanir lækna um gagnsemi eftirlitsins hafa ver-
ið skiptar, þó að fyrir því séu litlar beinar heimildir. Árið
1921 ritar héraðslæknirinn á Isafirði á þessa leið í skólaskoð-
unarskýrslu sinni: „Mér skilst, að sumir læknar telji þetta
eftirlit með alþýðuskólunum algerlega gagnslaust. Ég er sann-
færður um, að mitt eftirlit er mikils virði.“ I sömu átt hníga
ummæli nokkurra lækna, sem á annað borð létu álit sitt í ljós.
Sjá má, að sumir þeirra lækna, sem skýrslur bárust frá, hafa
skoðað börnin vandlega í byrjun skólaárs, mælt þau og vegið
og gefið gaum að algengum kvillum skólabarna. Hins vegar
kom það þegar í ljós, hve ólíkt læknar dæmdu um það, sem
þeir fundu athugavert. Er mjög oft að þessu vikið í Hbs. allt
frá upphafi eftirlitsins til þessa dags. Sem dæmi um þetta má
nefna, að á árunum 1916—20 finnst lús eða nit í tæplega
2% barna í einu héraði, en í rösklega 40% í öðru, eitlaþroti
á rösklega 2% í einu héraði, en 82% í öðru. Af þessu leiðir,
að ókleift er að gera sér grein fyrir raunverulegri tíðni sumra
kvilla skólabarna og fá samanburð á þeim fyrr og nú.
Upphaflega var eftirlitið eingöngu rækt af héraðslæknum,
enda víðast um engan annan lækni að ræða. I Reykjavík er