Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 24
PrestafólagsritiD.
Bjartsýni á sigur hins góða.
17
um. Þeir höfðu einnig tileinkað sér skoðun ]esú á gildi hvers
manns og lært að meta alla menn verða til eilífs lífs og gera
þar engan mun, hvorki eftir kynferði, stöðu né þjóðerni, eins
og annars átti sér stað á þeim tíma. Sjálfir keptu þeir að
siðgæðistakmarki því, sem Jesús hafði beint þeim inn á, og
svo tókst þeim að verða eitt, að um þá mátti segja, að »í
hinum fjölmenna hóp þeirra, sem trú höfðu tekið væri »eitt
hjarta og ein sál« (Post. 4,32).
Reynsla þeirra var því bezta staðfestingin og sönnunin fyrir
því, hve traustið til Guðs og á hið góða í heiminum væri
mikilsvert. Því að guðstraust þeirra bar þá yfir alla erfiðleika,
er á vegi þeirra urðu, gerði þá sterka og örugga og þol-
góða. En traustið á hið góða í mönnunum gaf þeim nýtt mat
á lífinu og breytti allri framkomu þeirra gagnvart mannlegu
umhverfi þeirra. Litla hjörðin var ekki lengur hrædd, en jókst
og efldist og hafði eðli súrdeigsins, og gagnsýrði alt umhverfi
sitt. Litla hjörðin lét hið ótrúlegasta verða að veruleika, og
það vegna þess, að þeir höfðu drukkið í sig traust frelsara
síns á hinum góða og hinu góða, og létu lögmál traustsins
verða að veruleika í lífi sínu og öllu framferði.
Trú þeirra á hinn góða og hið góða í mannlífinu er lífs-
lögmálið, sem breytt hefir heiminum smátt og smátt og altaf
er að breyta honum til hins betra.
Skulu hér tekin fáein dæmi þessu til stuðnings.
Meðan menn trúðu því, að konan væri karlmanninum óæðri,
var hún kúguð og ófrjáls, og á valdi karlmannsins að fara
með hana eftir vild sinni. En þar sem trúin á, að hún væri
manninum jöfn að manngildi, hefir náð að festa rætur, hefir
alt breyzt til hins betra. Þar sem andi kristindómsins nær
tökum á hugum manna, og menn hafa farið að treysta því,
að karl og kona væru jafnmikils virði í augum Guðs, þar
hafa fjötrar allir fallið af konunni og staða hennar og störf
í mannfélaginu verið metin jafnmikils og karlmannsins, og
hvort um sig verið skoðuð jafn rétthá og jafn göfug. Og
ávalt er reynslan hin sama um þelta víðsvegar um heim, að
þegar trúin á jafnrétti karla og kvenna er orðin nógu sterk
2