Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 77
70
Helgi Konráðsson:
Presíafélagsritið.
að skýrgreina þær með því einu, að þær væru það, sem
katólska kirkjan væri ekki. Með því væri annaðhvort því
slegið föstu, sem katólskir menn halda fram um þær, eða
þá hinu, að þær hafi öðlast allan sannleika en katólska
kirkjan engan, og hefðu þá mótmælendur gengið á hönd sömu
ósanngirninni og hún sjálf. Mótmælendur viðurkenna einmitt
hitt, að þeir hafi haldið eftir mörgu því bezta frá móður-
kirkjunni, því að fjarri sé því, að henni sé alls varnað, og
sannleikurinn birtist í ýmsum myndum, þó að hann sé einn
og hinn sami í eðli sínu. Það þarf að vísu ekki að leita
lengi, til þess að finna þær kirkjudeildir, sem þykjast einar
hafa á réttu að standa, en allar hinar fari villar vega. En
sanngjarnir móimælendur og þeir, sem hlíta frjálsri hugsun,
finna að eins og kirkjan er margskift og engin deild hennar
er algjör, þannig hefir líka hver þeirra eitthvað rétt og gott,
og skjáílast aftur í öðru. Þetta er eðlilegt vegna þess, hve
menn eru misjafnir að eðlisfari og hljóta þessvegna að leita
á ólíkum leiðum, enda þótt markið sé hið sama fyrir öllum
og allir muni mætast að lokum, þeir sem finna þörf til leitar.
Jafnvel þótt sannað yrði, sem erfitt mun reynast, að ]esús
hafi gefið lærisveinum sínum ákveðin fyrirmæli um starfs-
tilhögun og framkvæmdir hlutverks þeirra, þá mundi slík
sönnun lítils virði, nema hægt væri jafnframt að sanna, að
þau fyrirmæli væru ekki háð stað né stund, heldur væri þeim
af Jesú sjálfum ætlað varanlegt gildi og svo víðtækt, að þau
næðu til allra manna. Það virðist heldur alls ekki auðið að
benda með fullri vissu á það, að Jesús liafi sjálfur komið á
neinni ákveðinni kirkjuskipun, hvorki biskupakirkju, öldunga-
kirkju, eða safnaðarstjórnarkirkju, sem vara skyldi um aldur
og æfi, til að fullkomna tilgang hans, sem guðssonar og
frelsara mannanna. Hann sagði, að guðsríki kæmi ekki þannig,
að á það væri hægt að benda, vegna þess að það væri
hið innra með mönnunum (Lúk. 21,17). Það er nærri því að
segja mótmæli gegn þessum orðum að segja, að allar kristnar
þjóðir séu sýnilegt tákn guðs ríkis á jörðinni, og það eru
áreiðanlega mótmæli gegn þeim að benda á eitt kristilegt félag