Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 273
Prestafélagsritið.
Erlendar bækur.
261
„Efterklang. Efterladtc Prædikenev“ af Olfert Ricard. — 2. Oplag.
— O. Lohse. Köbenhavn 1929. — Verð ób. d. kr. 5,00. — „Paaske-
minder“ eftir sama höf. — Köbenhavn 1929. — Verð ób. kr. 2,00.
íslenzkir prestar þekkja hinn orðlagða danska kennimann Olfert Ricard
of vel til þess, að þessar síðustu baekur hans, sem vinir hans hafa gefið
út eftir hann látinn, þurfi nokkurra meðmæla.
„Under Dueflaget Danmark rundt. lndenlandsk Sömandsmission
1905—1930“. Ved Vilh. Rasch Sekretær. — Köbenhavn 1930. I Kom-
mission hos O. Lohse. — Með mörgum myndum. — Yerð d. kr. 1,50.
Bók þessi gefur góða lýsingu á kirkjulegu starfi meðal sjómanna í
Danmörku.
L. Glahn: „Hjemkomst Profeten. Enheden af Jesai'abogens Kp.
40-66“. — Köbenhavn. P. Haase & Söns Forlag 1929.
Bókin er dokforsritgerð og höfundur gamall presfur, sem hefir skrifað
hana í fómstundum sínum á efri árum. Mun hann vera einhver elzti
maður, sem varið hefir ritgerð fyrir doktorsnafnbót við Kaupmannahafn-
arháskóla. Aðalviðfangsefnið er að leiða rök að því, að einn maður
hafi ritað 40.—66. kap. Jesajaritsins, en ekki tveir eða fleiri, eins og oft
hefir verið haldið fram á síðari tímum. Bókin ber vott um Iærdóm og
nákvæma rannsókn. S. P. S.
„Dansk Kirkeliv medens Tiderne skifter“. — 0. E. C. Gads
Forlag 1929.
A hverju ári kemur út bók með þessu heiti. Er hún að mörgu leyfi
svipuð Prestafélagsritinu íslenzka. Ymsir menn dönsku kirkjunnar rita
vekjandi og fræðandi ritgerðir, en ritstjórinn er Johs. Nordentoft pró-
fastur, sem nú er sóknarprestur við Garnisonskirkjuna, þar sem Olfert
Ricard var prestur.
Ársrit þetta, sem að þessu sinni er 167 blaðsíður, hefir mikinn fróð-
leik að geyma, og má nauðsynlegt teljast þeim, er vilja kynnast kristni-
og kirkjulífi dönsku þjóðarinnai. Má benda á ágætar greinar, er prýða
bók þessa. Þar er t. d. mjög fróðlegur kafli um mæta menn, sem fæddir
eru á prestssetrum og hafa alist þar upp. Höfundurinn, Oscar Geismar
prestur, lýsir því, hvern þátt hið andlega líf á prestssetrunum hefir átt
í menningarsögu þjóðarinnar. Mætti án efa skrifa um hið sama frá ís-
lenzku sjónarmiði.
Vel og greinilega er sagt frá starfi kirkjunnar á Suður-Jótlandi. Einnig
er vel ritað um kristniboð meðal heiðinna þjóða, og má margt af þeirri
ritgerð læra, enda er hún samin af Hans Koch prófasti, merkum og á-
hugasömum presti. — Ammundsen biskup ritar um fræði Lúthers af
þekkingu mikilli, eins og vænta má.