Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 206
196
Jóhannes Sigurðsson:
Presíafélassritiö.
spiltu lífi til nýs lífs í Guði, benti á það, að nauðsynlegt væri
að koma á fót stofum eða heimilum, þar sem sjómenn væru
velkomnir og vel væri tekið á móti þeim, og þeim leiðbeint
í andlegum og tímanlegum efnum.
Árið 1818 var því stofnað félag í London, sem átti að
hrinda þessu í framkvæmd. — Það bar þann árangur, að
1908 starfnði það í 113 höfnum, átti 114 byggingar, og hafði
180 fasta starfsmenn í þjónustu sinni.
Árið 1830 var félagið »Sjómannaheimili« stofnað með það
fyrir augum, að veita þeim sjómönnum, sem kæmu til hafnar
í London, kost á að eyða frístundum sínum í góðum og
skemtilegum húsakynnum.
Nú er það enska kirkjan, sem heldur uppi öllu þessu starfi.
/ Norður-Ameríku var árið 1828 stofnaður félagsskapur í
þessu sama markmiði.
Á Norðurlöndum er það cand. theol. Síorjohann, sem fyrst-
ur vekur máls á þessu starfi, og 31. ágúst 1864 stofnuðu
Norðmenn »Foreningen til Evangeliets Forkyndelse for skan-
dinaviske Sömænd i fremmede Havne«. Hann varð síðan
um all-langt skeið sjómannaprestur í ýmsum löndum og ferð-
aðist víða, kom til íslands árið 1905. Hann er kallaður faðir
sjómannastarfs norsku kirkjunnar. Stjórn þess situr í Bergen,
og eru í henni 9 menn.
Félagið nær yfir alt landið og skiftist í 13 flokka og 700
deildir, sem binda starfið traustum böndum við söfnuðina.
Árið 1865 var byrjað að gefa út blað, »Bud og Hilsen*, og
er upplag þess nú um 10.000 eintök.
Bak við starfið stendur öll norska þjóðin, og er starfið
knýtt kirkjunni svo, að það er oft kallað »Framrétt hönd
kirkjunnar*. — Það á nú 50 sjómannakirkjur og sjómanna-
stofur víðsvegar um allan heim. Það hefir engan opinberan
styrk, en fær alt fé með frjálsum gjöfum.
Ennfremur eiga Norðmenn 18 sjómannaheimili innanlands,
sem sérstaklega starfa á meðal fiskimanna, og sömuleiðis tvö
»BeteIskip«, en þau eru tvent í einu, spítali og kirkja. Þau
fylgja fiskiflotanum á vertíðinni, og eru fiskimönnunum til