Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 215
Prestafélagsritiö. Kirkjulegt starf meðal sjómanna.
205
Þrisvar hefir stofan orðið að skifta um húsnæði og hefir
það valdið miklum óþægindum. Nú er hún við Tryggvagötu 39.
Það hljóta allir að skilja, að starfið hefir kostað mikið fé,
ti! dæmis var húsaleiga eitt árið á fimta hundrað krónur um
mánuðinn. Stofan hefir ekki til þessa haft opinberan styrk, en
alt fé komið af frjálsum gjöfum, — einkum frá sjómönnunum.
Þetta er aðeins byrjunarstigið, takmarkið er:
Veglegt sjómannaheimili í Reykjavík, og sjómannastofur í
hverri verstöð á Iandinu.
Sem dæmi um brýna þörf á sjómannaheimili í Reykjavík,
get ég bent á það, að bæði vor og haust kemur það oft íyrir,
að sjómenn, sem koma úr veri eða eru að fara til skips og
verða að staðnæmast í bænum um stundarsakir, hafa orðið
hópum saman að ganga úti heilar nætur, sökum þess að þeir
gátu hvergi fengið húsrúm.
Mér er persónulega kunnugt um það, að ungir menn hafa
undir þessum kringumstæðum leiðst út í drykkjuskap, og
fallið í aðrar tálsnörur, sem orðið hafa á vegi þeirra á slík-
um nóttum.
Þann veg tekur höfuðstaður þessa lands á móti þessum
mönnum, þegar þeir koma úr hinni erfiðu baráttu við hafið.
Þörfina á sjómannastofum í verstöðvunum hljóta allir að
skilja. En spor í þá átt steig K. F. U. M. og K. í Vest-
mannaeyjum, og er sóknarpresturinn séra Sigurjón Árnason
formaður, og var þar opin sjómannastofa tvær síðastliðnar
vertíðir. — Þar eru samankomnir sjómenn víða að, og þörfin
því mikil, enda er mér kunnugt um það, að því var mjög fagnað
af sjómönnunum, og sóttu þeir stofuna mikið og voru fjölda
mörg bréf skrifuð þar.
Ennfremur sá stjórn Sjómannastofunnar í Reykjavík um
starf á Siglufirði síðastliðið sumar, — en þar eru saman-
komnir sjómenn af öllu landinu um síldveiðatímann, þess er
því sérstaklega mikil þörf. — Þar voru til dæmis skrifuð rúm
þúsund bréf á tæpum hálfum öðrum mánuði.
Allar nágrannaþjóðirnar helga sjómönnunum einn sunnudag