Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 212
202
Jóhannes Sigurðsson:
Prestafélagsritiö.
Hann hélt fundi með mörgum málsmetandi mönnum bæjar-
ins, og ræddi þetta mál. Voru allir á eitt sáttir, að nauðsyn-
legt væri að byrja starf hér. — Kom öllum saman um, að
sjálfsagt væri, að starfið væri íslenzkt, og sjálfstætt. Og á
einum fundi, sem hann hélt, var ákveðið að gera tilraun með
sjómannastofu. — Hann valdi henni stjórn og skyldi hún vera
skipuð dómkirkjuprestinum, fríkirkjuprestinum, einum manni úr
hvorri sóknarnefnd, og einum manni úr stjórn K. F. U. M.
og öðrum úr K. F. U. K., en biskup skyldi vera formaður.
Hlutu því sæti í stjórninni: Dr. theol. Jón Helgason biskup,
séra Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur, séra Árni Sigurðsson
fríkirkjuprestur, Árni Jónsson kaupmaður, Sigurbjörn Þorkels-
son kaupmaður, cand. theol. S. Á. Gíslason og frú Guðríður
Þórðardóttir; síðar bættist við Þorvarður Björnsson hafnsögu-
maður, núverandi gjaldkeri starfsins. — Þessir menn tóku svo
á leigu tvö herbergi á Vesturgötu 4, og réðu forstöðumann. —
Og 15. ágúst 1923 var >Sjómannastofan í Reykjavík* opnuð.
Það kom brátt í ljós, hve mikil þörf var fyrir þetta starf,
og mjög var því fagnað af sjómönnunum.
Vér lifum á öld flugvélanna, og gengur nú alt með flug-
hraða, einnig þegar um er að ræða afferming eða ferming
skipa. — Þessvegna er dvöl sjómanna í höfn oft afar stutt.
Það kemur oft fyrir, að fiskiskip koma inn að kveldi eftir
að öllum opinberum stofnunum er lokað, svo sem bönkum,
pósthúsi og símastöð, og eru farin aftur úr höfn áður en
opnað er næsta dag. Eitt af hlutverkum sjómannastofunnar
er að greiða fyrir bréfum, símskeytum, og annast um peninga-
sendingar fyrir sjómennina. — Það er auðvitað engin þóknun
tekin fyrir slík störf.
Aðsókn að stofunni hefir alt af verið mikil, og 10,000 sjó-
menn heimsóttu hana síðastliðið ár; þeir skrifuðu rúm 4000
bréf, en 3700 bréfum var tekið á móti úr pósti og þeim kom-
ið til skila, og 11 þúsund krónur voru sendar heim fyrir sjó-
menn á sama tíma. Margar samkomur og fyrirlestrar voru
haldnir, og um jólin er reynt að hafa sérstakan jólatrésfagnað.