Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 128
Pre*taf«l*gsritið.
Rómversk-kalólska kirkjan.
119
skirðist þá ekki heldur við að senda þeim kveðju sína og
sú kveðja var fólgin í fullkominni fyrirdæmingu stefnunnar í
heild sinni. í páfaúrskurði frá 3. júlí 1907 með nýrri fyrir-
dæmingarskrá (Syllabus) fyrirdæmdi Píus 65 villukenningar
modernista. Og í nýju umburðarbréfi 8. sept. s. á. telur hann
modernista-stefnuna erkivilludóm þeirra tíma. Meðal annars
vísar hann á bug í þessum og öðrum skrifum sínum sem
háskalegri villu þeirri kenningu, að innblásturinn nái ekki tii
heilagrar ritningar í heild sinni og sé henni ekki vörn gegn
hverskonar villu, og að þeim, sem útskýrir ritninguna, sé
skylt að gera það hleypidómalaust og útskýra hana eins og
hvert annað eingöngu mannlegt ritverk. í umburðarbréfinu
ber hann modernistum á brýn, að þeir séu óvinir kross Krists
og verstu andstæðingar kirkju hans; meginlærdómur þeirra sé
þróunarkenningin, þar sem þeir kenni, að kirkjan með trúar-
greinum sínum og guðsþjónustu sé háð lögmáli þróunarinnar.
Enn finnur páfi þeim til foráttu, að þeir geri tilfinninguna að
uppsprettulind trúarinnar og byggi á innri reynslu, er þeir
rökstyðji trúna, í staðinn fyrir að styðjast við rök upplýstrar
skynsemi, — eins og þeir yfirleitt greini ótilhlýðilega hvað frá
öðru trú og þekkingu, átrúnað og vísindi. Gagnstætt þessum
skoðunum heldur Píus K. fram hinni háspekilegu heimspeki
og guðfræði, sem öll kensla við allar fræðslustofnanir (sem-
inaria) og katólska háskóla eigi að grundvallast á. Hann
heimtar, að nákvæmt eftirlit sé haft með fyrirlestrum og rit-
um háskólakennaranna, til þess að þeim, sem kynnu að hafa
drukkið í sig nýtísku skoðanir, megi vísa á bug sem óhæfum
í slíkri stöðu. Lærisveinum á prestaskólunum katólsku er
bannað að lesa blöð og tímarit, og prestsefni eiga allra helzt
að forðast ríkisháskólana. Prestafundi má ekki halda aðra en
þá, sem haldnir eru undir eftirliti biskups. Engum »modern-
istac megi veita prestlega vígslu og engum námsmanni í
lærðum skóla né stúdent við háskólann megi Jíðast að lesa
modernista-rit. Hvernig Píus X. páfi leit á mótmælendastefn-
una, er auðráðið af öðru umburðarbréfi hans, þar sem hann
lýsir öndvegishöldum siðbótarinnar sem »hrokafullum upp-