Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 65
58
Kristinn F. Stefánsson:
Praslafélagsritiö.
hvort annað. Lausn vandamála félagslífsins verður að
byrja á heimilunum.
5. Til þess að bæta úr húsnæðisbölinu er meðal annars
stungið upp á því, að bæjarfélög og iðnfélög byggi ný
hús með fjárframlagi úr ríkissjóði og að rækileg viðgerð fari
fram á gömlum húsum. — Skipulagi bæja sé breytt svo,
að iðnaðarhluti og verzlunarhluti séu greindir frá íbúðar-
hluta. Bæjarbúum sé gert kleift að færa bústaði sína út
fyrir borgirnar vegna sérstakra samgöngubóta og fleiri
nauðsynlegra fríðinda.
6. Þegar verkamannabústaðir eru bygðir, sé lögð áherzla á,
að húsin séu höfð lítil, hvert hús helzt aðeins fyrir eina
fjölskyldu, en vönduð að frágangi. Bað sé í hverju húsi
og sem flest svefnherbergi; æskilegt væri og að garður
gæti fylgt hverju húsi.
7. Sá, sem vinnur að bættum húsakynnum, vinnur einnig á
móti fátækt, atvinnuleysi, sjúkdómum og löstum. Góð
skipun á húsnæðisvandamálinu útrýmir þessu að miklu leyti.
II. Félagslíf.
1. Afbrot og refsingar.
1. ]esús neitar hvergi, að refsing komi fyrir drýgðan glæp,
en gildi refsingarinnar á að vera uppeldislegt, en ekki
endurgjaldandi.
2. Þessvegna þurfa fangelsin að verða einskonar uppeldis-
stofnanir; hingað til hafa þau yfirleitt ekki verið það.
3. Til þess að vinna bug á glæpahneigð manna, er nauð-
synlegt að bæta úr öllum þeim ytri ástæðum, sem standa
að jafnaði í nánu sambandi við afbrot, svo sem: fátækt,
atvinnuleysi, húsnæðisleysi, ofdrykkja, fjárhættuspil, rangar
lífsskoðanir og spilt uppeldi.
4. Fangelsisfyrirkomulagið er mjög gallað: Of stutt fangelsis-
vist hefir engin áhrif á afbrotamanninn; sé fangelsistím-
inn aftur á móti of langur, rænir hann manninn flestum
borgaralegam réttindum. Sé fanginn siðferðilega lamaður,