Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 232
220
Sigurður P. Sívertsen:
PrestafélagsritiD.
lifandi Guð, eru skilyrðin fyrir þegnrétti í guðsríkinu, sam-
kvæmt prédikun Jesú.
Þetta sáma sjáum vér, ef vér athugum það, sem nefna
mætti grundvallarlög eða stjórnarskrá þessa ríkis. Ollum sam-
stofna guðspjöllunum kemur saman um, að tvöfalda kærleiks-
boðorðið, um að elska Guð af öllu hjarta og náungann eins
og sjálfan sig, sé æðsta boðorð guðsríkisins. Guðstraust og
guðselska og óeigingjarn mannkærleikur eru grundvallarregl-
urnar, sem Jesús leggur áherzlu á. Og af lærisveinum sínum,
sem hann sendi til að boða guðsríkið og uppól til að verða
þegna þess, krefst hann þess, að þeir keppi að því háleifa
marki, að verða fullkomnir eins og þeirra himneski faðir sé
fullkominn. Með því er áherzlan lögð á það, að hverjum læri-
sveini Jesú beri að kepp3 að fullkomnun í heilagleika, í rétt-
læti og í kærleika. Þeir eiga að líkjast föðurnum himneska í
þessu. Er unt að fá betri lýsingu á því, að Iífshugsjón Jesú
hafi verið trúarlegs og siðferðilegs eðlis. Enda er þetta í
fullu samræmi við það, að Jesús miðar réttlæti það, sem hann
krafðist og kendi, við hugarfar manna, við viljastefnuna, við
góðan vilja mannsins. Nýja réttlætið, sem gildi hafði í guðs-
ríkinu, var fólgið í réttu ásigkomulagi hjartans, í réttmótaðri
lyndiseinkunn. Það var réttlæti hjartans, réttlæti hugarfarsins.
Lítum næst á köllunarvitund Jesú.
Sem boðberi Guðs prédikaði Jesús fagnaðarerindið um
guðsríkið og kendi mönnum að þekkja vilja Guðs. Hann var
sannfærður um, að hann væri sendur af Guði, væri kominn
í heiminn til þess að framkvæma ákveðna köllun frá Guði.
En til hvers sagðist Jesús vera sendur, vera kominn?
Samstofna guðspjöllin nota fimm orð til þess að lýsa því,
hverra erinda Jesús hafi verið sendur af Guði.
Jesús var kominn tii að kalla synduga menn til iðrunar og
til hluttöku í hjálpræðisgæðum guðsríkisins.
Hann var kominn til að frelsa. Sem góði hirðirinn er hann
kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það. Að um
frelsun í andlegri merkingu sé að ræða, sjáum vér af sög-