Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 46
Pr«8t*!él»a*ritiö.
Trú framliðarinnar.
39
öldum fágætir afburðamenn, sem hafa haft meðvitund um
það í sérstaklega ríkum mæli, að alheimurinn sé heild. Vér
höfum séð það, að hver eining, sem alheimurinn er myndaður
af, er smá heimur með sama svip og hann í raun og veru.
Og þessar einingar, sem vér nefnum afburðamenn, má skoða
eins og smá heima, er séu sér þess meðvitandi, að þeir séu
sjáltir ímynd eðlis og kjarna alheimsins. Þeir finna, að þeir
eru sjálfir fyltir anda tilverunnar. Eins og venjulegir menn
hafa meðvitund um sjálfa sig, þannig hafa þeir meðvitund um
tilveruna.
Þetta má skýra með dæmi. Obrotinn franskur sveitamaður
hefir alveg ljósa meðvitund um sjálfan sig, en naumast neina
um frönsku þjóðina. Jóhanna frá Orleans hafði aftur á móti
afarijósa meðvitund um hana. Það er eins og hjá henni hverfi
alt fyrir frönsku‘þjóðinni. Hún er altekin af ást til Frakka og
þeir elska hana. Ást er á báðar hliðar. Á líkan hátt hefir
verið farið þessum fágætu mönnum, sem hafa verið gæddir
meðvitund um alheiminn. Þeir hafa verið gagnteknir af mátt-
ugum kærleika til allrar veraldarinnar — meðbræðra sinna
og alls, sem er til. Og þeir hafa fundið, að þeim sjálfum var
unnað. Slíkir voru hinir miklu spámenn Hebrea, Araba, Persa
og Indverja. Alt fram á þennan dag koma fram menn, sem
hafa notið líkrar reynslu. Og fullvissi þær oss um það, þess-
ar æðstu verur, sem heimurinn hefir látið verða til, að tilver-
unni sé stjórnað að góðu marki, þá eru miklar horfur á, að
svo sé í raun og veru.
Oss kristnum mönnum virðist sem Kristur hafi haft í rík-
ustum mæli meðvitund um heildina. Hann er að vorum dómi
®ðsti vottur og ímynd þess kraftar, sem ríkir yfir alheimin-
um og stjórnar honum og vér nefnum Guð. Hann er sönn
•mynd Guðs. Hann er í vorum augum hið æðsta, sem alheim-
urinn hefir látið verða til, og þar af leiðandi öruggust bend-
mg um það, hvernig krafturinn sé, sem knýr hann, og hvert
sé stefnt. Og þegar Kristur fullvissar oss um það, að sá
kraftur sé máttur kærleika og markið Guðs ríki, þá byggist
á bjargi trú vor á það, að tilveran sé góð.