Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 62
Prestafélagsritió. Kirkjan og þjóðfélagsvandamálin. 55
ingar, að wísu bygðar á rækilegri íhugun og rannsókn, til
hugsanlegrar úrlausnar vandamálanna. En öllu öðru fremur
er þingið þó greinilegur vottur vaknandi samvizku kristins
manns fyrir þeirri ábyrgðartilfinningu, sem vér höfum allir jafnt
á hinu margháttaða þjóðfélagsböli vorra tíma. Fegurra dæmi
þessa, þekki ég eigi úr kirkjusögu síðari alda.
Það er mjög ánægjulegt að lesa um þetta þing. Vér dá-
umst að þeirri einingu, sem ríkti þar og megnaði að sameina
þessar ólíku 1500 sálir, karla og kvenna. Djúp auðmýkt og
heilagur kraftur samstilti allan þennan sundurleita stóra hóp
í sameiginlegri bæn, sameiginlegri hugsun og sameiginlegu
starfi. Einskis kirkjukrits varð þar vart, engrar kaldrar vin-
áttu kirkna á milli. Þrátt fyrir allan skoðanamismun ríkti þar
fullkomin eining. Eldleg hrifning hins þjónandi kærleika stökti
á flótta allri tortrygni, öllu því, sem sundrar; — þar var »eitt
hjarta og ein sál*1). í umræðunum tóku þátt prófessorar og
stúdentar, vinnuveitendur og vinnuþiggjendur, fulltrúar blaða
og ýmsra iðnaðargreina. Sakir samhuga og eindrægni þing-
manna og stórmerkra viðfangsefna er kirkjufundurinn f Birm-
ingham merkasti viðburður kirkjusögunnar á vorum dögum,
og þótt lengra sé leitað.
A þinginu var skipuð nefnd, sem skyldi halda starfinu áfram
í sama anda. Skyldi nefndin gangast fyrir smærri kirkjufund-
um víðsvegar um Bretland, gefa út mánaðarrit (The Copec
News) til eflingar hreyfingunni o. fl. Var þessu hvorttveggja
strax hrundið í framkvæmd og brátt bættist ýmislegt fleira
við. Nú starfar árlega hinn svonefndi sumarskóli uppi í sveit,
sem miðstjórn hreyfingarinnar sér um. Þar eru flutt erindi
um kristindóm og félagsmál, umræður háðar o. s. frv., og unga
kynslóðin réttir eldra fólkinu »örvandi hönd* með því að
koma á copec-æskuhreyfingu. Unga fólkið heldur sína eigin
fundi, og á ferðalögum sínum til og frá um landið, flytja þeir
copec-boðskapinn út um bæ og bygð. Þó sýnir ef til vill fátt
betur, hvílíku fylgi þessi stefna á að fagna hjá ensku þjóðinni
!) Justus Ferdinand Laun: Soziales Christentum in England, 1926.