Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 246
234
Frumvörp kirkjumálanefndar.
Prestafélagsritið.
síns. Skal hann þá fyrir júnílok ár hvert senda „bókanefnd prestakalla*
skrá yfir bækur þær, er hann óskar að fá í bókasafnið og greiða lk
verðs þeirra innbundinna og flutningsgjalds fyrirfram.
4. gr. Bókanefnd prestakalla skipa 3 menn: Tveir guðfræðingar, og
einn til vara, kosnir af prestastefnu — synodus — til 3 ára í senn, og
einn maður, sem sérstaklega er kunnur að smekkvísi og þekkingu í
almennum bókmentum og dóms- og kirkjumálaráðuneytið skipar til jafn-
langs tíma. Skal bókanefndin annast um útvegun bóka i bókasöfn presta-
kalla, og dæma um, hvort bækur, sem útvega á, fái fullnægt skilyrðum 2.
greinar, og veita leiðbeiningar þar að lútandi.
5. gr. Nú hefir bókanefnd boriat beiðni um útvegun bóka samkvæmt
3. gr., og kemur beiðnin eigi í bága við fyrirmæli 2. greinar laga þessara.
Utvegar hún þá bækurnar, en ráðuneyíið ávísar bókanefndinni, eða bók-
sala hennar, 3/j kostnaðar úr ríkissjóði, gegn því að bækurnar verði
eign bókasafns prestakallsins. f>ó má ekkert ár verja meiru fé úr ríkis-
sjóði í þessu skyni en 10 þús. kr. samtals.
9. gr. Bókasafn prestakalls skal geymt þar sem prestur situr, enda er
safnið í ábyrgð hans.
Prófasti er skylt að sjá um, að safnið sé vátryggt gegn eldsvoða og
greiðist iðgjaidið af framlagi ríkissjóðs.
Nú er prestakall prestslaust og gerir prófastur þá þær ráðstafanir, er
þurfa þykir, til öryggis safninu.
Við prestaskifti skal fara fram úttekt á bókasafni prestakallsins, og
gerir prófastur þá fráfarandi presti að greiða bætur fyrir, ef á vantar og
kenna má vangeymslu hans.
10. gr. Nú er bókasafn prestakalls komið á stofn á prestssetrinu, og
má presturinn þá lána sóknarbörnum sínum bækur safnsins, er hann má
án vera, enda er honum rétt að krefjast skaðabóta, ef bækur skemmast
eða glatast. Og sérstaklega skal hann gera sér far um að benda ung-
mennum safnaða sinna á þær bækur safnsins, er hann hyggur vera þroska
þeirra við hæfi og þeim fái að gagni komið til trúar- eða menningar-
þroska. Skylt er presti að gera útlánaskrá, er fylgir prestakaliinu.
Frumvörp þessi stefna að því að efla andlegan þrótt presta, áhuga og
víðsýni, og tryggja aðstöðu þeirra til starfsins, svo að þeir fái orðið
hæfari menn og gagnlegri hver í sínum verkahring. — Bókasafnafrum-
varpið stefnir einnig að því að vera til gagns fyrir sóknarmenn hvers
presfakalls, einkum þó fyrir kennara og ungmenni.
Naumast mun það geta orkað tvímælis, að frumvörp þessi fari í réfta
átt. Utanfarir eru nauðsynlegar öllum þeim mönnum, sem forgöngu eiga
að hafa, og ætti löggjöfum vorum því að skiljast, hve áríðandi það sé,
að prestar eigi þess kost, að kynnast menningarstraumum umheimsins og
því, sem þar gerist merkast í trúar- og kirkjulífi og mannúðarmálum. —