Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 188
178
Þorsteinn Briem:
Prestafélagsritiö.
að mæla, sem verið hefur eitt hið merkasta í sögu landsins.
Það tímabil, er þjóð vor vaknar af margra alda svefni og
sér og finnur, að kominn er dagur.
Glæstust verður söguminningin um foringjann fræga, sem
þá kvatti þjóð vora fram. En að baki honum stóð aftur þéttur
hópur sporgöngumanna hans og samstarfenda, sem fylgdu
honum trúlega og báru fram merkið, að honum látnum.
Og ef vér lítum aftur í tímann, þá sjáum vér að ættjörðin
hefur vart á síðari öldum átt jafnmarga nýta og ágæta sonu
sem á þeim árum.
Meðal þeirra mun séra Eiríkur verða talinn.
Nafnkendur maður fornaldarinnar þakkaði forsjóninni fyrir
það, að hann var á Grikklandi alinn. Séra Eiríkur þakkaði
Guði, að hann var alinn á íslenskri mold. Og ég hygg, að hann
hafi jafnframt verið Guði sínum þakklátur fyrir það, að hann
var borinn á morgni þjóðlífsins, og fékk að starfa með þeim
árdegismönnunum, að viðreisn landsins. Hann var að vísu ekki
nema að nokkru leyti samtíðarmaður þeirra, sem ruddu braut-
ina og gengu fyrstir á undan. En hann náði þó að starfa
með þeim, og að halda störfum þeirra áfram. Og ég hygg,
að þau störf hafi hentað honum enn betur. Það varð ekki
sagt um séra Eirík, að hann væri gæddur lundarfari þeirra
manna, sem ryðja mörkina og plægja óbrotin lönd. Hann
var einmitt miklu fremur skapaður til þess að vökva og sá.
Og ég hygg, að það sé og verði ekki vitað, hversu víða
hann hefur, með hygni sinni og fjölhæfni, sáð hollum sáðum.
Ungur að aldri kaus hann sér sitt sérstaka sáðmannsstarf
innan kirkjunnar. Mun það val hans eigi hafa verið með ráði
foreldra hans, heldur hafði saga kristninnar bent honum á,
að sá maður girnist gott verk, sem vill boða mönnunum hug-
arfar og kenningu Jesú.
Hafði hann síðan alla æfi ást á þeirri bók, er hafði ráðið
því vali hans. Á þeim árum kom og út æfisaga Oberlíns
prests, er verið hafði alt í senn, andlegur faðir og leiðtogi
sóknarbarnanna og ráðgjafi þeirra og foringi í bjargræðis-
baráttu þeirra. Séra Eiríkur gekk út í prestsstarfið með þeim