Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 154
Pre3tafélag«ritiö.
Trúarbragðafræðsla í skólum.
145
verði leiðarstjörnur þess. í núverandi skólum er þess helsti
lítill kostur. Athafnalíf barnsins og hugsanalíf er að miklu
leyti skorðað við það, að veita námsefni viðtöku og standa
skil á því. Meiri hluti athafna nemendans er framkvæmd
hugsana kennarans. Það er hugkvæmni hans, sem finnur upp
á störfum, vilji hans, sem ræður aðferðum. Slíkar athafnir
geta veitt nemandanum leikni. En á bak við hverja athöfn,
sem á að hafa uppeldisþýðingu, verður að vera svigrúm fyrir
vilja og ákvörðun, svigrúm til þess að velja og hafna. Hér
er það ekki til staðar. Slíkar athafnir efla ekki skapgerð
nemandans, stuðla ekki að því, að gera persónu hans mátt-
uga og göfga.
Höfuðeinkenni lífs og vaxtar er fólgið í því, að veita áhrif-
um viðtöku og andæfa þeim í sjálfstæðum athöfnum. Skóli
með ríkjandi fyrirkomulagi svarar ekki til lífsins nema að
hálfu leyti. Hann tekur fyrra atriðið í þjónustu sína og gleymir
um of hinu síðara. Hann hefir ekki nægilega mikið svigrúm
fyrir það, sem svarar til þess helmings alls lífsstarfs, er
mestu varðar: Mótun, sköpun persónunnar fyrir athöfn og
framkvæmd. Fyrir óþjálni þessara starfshátta glatast hið há-
leitasta í uppeldistakmarki trúarbragðanna: Hinn persónulegi
sjálfsþroski, sem birtist í sterkri löngun til þess að verka á
umhverfi sitt, störf og félagshætii, í samræmi við sannfæringu
sína og innra líf. Skólinn, sem slíkur, og skólastarfið, eins
og því er háttað nú, eru mjög um of snauð að tækifærum til
slíks. Önnur sjónarmið og önnur markmið eru þar drotínandi.
* *
*
Vér höfum þá komist að þeirri niðurstöðu um skóla, sem
tekur að sér kristindómsfræðslu, að þess verði að gæta í alls-
herjar markmiði skólans að svo sé. Hann verður að því leyti
að vera í allverulegum atriðum frábrugðinn skólanum, sem
lætur sér trúarbrögð óviðkomandi. Þá höfum vér einnig lítil-
lega bent á takmarkanir þær, sem í því felast frá skóians
hálfu, ef hann lætur sig trúarlíf barnanna engu skifta. Loks
hörum vér leitast við að sýna fram á hvernig skóli með ríkj-
10