Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 47
40
Francis Vounghusband:
PresfafélagsriiiO.
Og trú framtíðarinnar mun fela í sér trú á framtíðina. Vér
vitum, að eftir vorri eigin reynslu að dæma lifa mennirnir
áfram eftir dauðann, og það ekki eins og fölar minningar
einar, heldur eins og starfandi kraftar i hjörtum ástvina sinna
og þjóðar sinnar. Vér vitum, að Frakkar lifa áfram í sál
frönsku þjóðarinnar. Foch mun verða starfandi kraftur í sál
hennar svo lengi sem Frakkland og Frakkar verða til. Vér
vitum ennfremur, að þjóðir lifa áfram í sál mannkynsins.
Forn-Grikkir eru enn afi í heiminum. Eftir því sem æfi vor
er fyrir dauðann, munum vér iifa áfram í þjóð vorri, annað-
hvort svo, að áhrifin verði naumast greind, eða eins og vold-
ugur kraftur. Og hið sama mun verða um þjóð vora í sál
mannkynsins.
Þá er vér vitum þetta og trúum því, að þegar lífinu linni
á þessari plánetu, verði ávalt lifandi verur einhversstaðar í
alheiminum, — þá munum vér einnig treysta því, að sál
mannkynsins haldi áfram að starfa í sálum einstaklinga
og samfélaga á víð og dreif um aiheiminn. Andleg störf vor
berast jafnvel nú þegar eins og sólarljósið eða söngur frá út-
varpsstöð á bylgjum ljósvakans um alheiminn og ná til lif-
andi vera hvar sem er, enda þótt þær kunni að verða þess
ekki varar. Og eftir það að öllu lífi er lokið á þessari plánetu,
mun sál mannkynsins halda áfram að starfa í alheiminum í
heild sinni, eins og sál Fochs starfar áfram með frönsku
þjóðinni.
Ærin rök eru þá fyrir þeirri trú, að tilveran sé góð. Og
mannkynið er nú aðeins í fyrstu bernsku, en ekki enn komið
á aeskuskeið. Það hefir Iifað aðeins í miljón ár, en það getur
orðið biljón ára, og af því risið æðri flokkur af verum en vér
enn getum séð fyrir. Og vér megum reiða oss á það, að eftir
því 6em það þroskast, vex trúin á það, að heiminum sé stjórnað
að góðu marki. Vér eigum nú trú á það, að heiminum sé
stjórnað af kærleika. Vér getum gert oss það í hugarlund,
að trú framtíðarinnar muni verða trú á það, að heiminum sé
stjórnað af heilagleika, 6em feli í sér hvorttveggja fegurð og