Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 278
266
Erlendar bækur.
Prestaíélagsritiö
Die Religion des Volkes Israels. 2. útg. 1929.
Qestalien und Gedanken Israels. Ljós og lifandi frásögn um
ýmsa afburðamenn Israelsþjóðarinnar.
Die aliiestamentliche Wissenschaft in ihren wicht. Ergebnissen,
með 14 hortum og 21 mynd. Verð 6,00 mörk. Agætt rit og gagnlegt.
A næstu árum kemur út geysimikið skýringarrit yfir Qamla-testamentið,
sem margir merkustu gamlatestamentisfræðingar Þýzkalaeds rita.
Merkustu skýringarrit þýzk yfir Gamla-testamentið eru nú:
Göttinger Handkommentar zum Alten Testament, sem W.
Noivack gefur út, og Kommentar zum Alten Testament, er Ernst
Sellin gefur út. Skýringar yfir einstök rit má fá sérstaklega úr söfn-
um þessum. — Um þjón Jahve og Ijóðin um hann hefir W. Robinson
skrifað ágætan bækling, er heitir á þýzku: Kreutz und der Knecht.
Einleitung in das Alte Testament, eftir Ernst Seltin, er sú inn-
gangsfræði, sem mun nú mest notuð við þýzka háskóla. Höfundurinn
hefir sjálfur tekið þátt í rannsóknunum við fornleifagröft í Austurlöndum
og er frægur vísindamaður. Hann er djarfur í tilgátum sínum, en þó
íhaldssamur. Kennari er hann ágætur og ber bókin þess glögg merki.
Hún kom út í 5. sinn í fyrrasumar.
Nýjatestamentisfræði.
Agætt skýringarrit yfir Nýja-testamentið, sem nú er farið að nota mjög
mikið á Þýzkalandi, er Handbuch zum Neuen Testament, sem
Hans Lietzmann prófessor í Berlín gefur út. Skýringarrit H. A. W. Myers,
sem kom fyrst út á árunum 1829—1865 og oft sfðan, er nú að koma út í
aukinni og éndurbættri útgáfu, alls 16 bindi, sem Iokið verður á næstu árum.
Ymsir snjöllustu nýjatestamentisfræðingar Þjóðverja fjalla um verkið. Alt
ritið kostar um 100 mörk, en auðvitað geta menn eignast einstök bindi.
Oskar Holtzmann prófessor hefir 1926 gefið út stuttar og glöggar
skýringar yfir öll rit Nýja-testamentisins. Bókin nefnist: Das Neue
Testament nach dem Stuttgarter griechischen Text iibersetzt und erklárt.
Ensk skýringarrit yfir Nýja-testamentið, skrifuð af merkum vísinda-
mönnum, eru nú að koma út og nefnast: The Westminster New
Testament Commentaries.
Stórmerk inngangsfræði Nýja-testamentisins eftir Rudolf Knopf er
komin út í ár í þriðju útgáfu.
Edgar J. Goodspeed: The Story of the New Testament, og eftir
sama: The Formation of the New Testament, stuttar og aðgengi-
Iegar bækur um það, hvernig Nýja-testamentið er til orðið.