Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 27
20
Sigurður P. Sívertsen:
Prestafélagsritið.
lífsþrótti. En eitt er þeim öllum sameiginlegt: Þeir treysta mönnum
og frá þeim streymir ástúð og hlýja. Sérstaklega er alkunnugt, hve
traust mæðra á hæfileikum og góðum eiginleikum barna sinr.a,
hefir orðið mörgum manni, bæði körlum og konum, öflug-
asta hvöt til að þroska hið bezta, sem með þeim hefir búið.
Alt ber að sama brunni, að það sé óhagganleg staðreynd,
að trúin á hið góða, í hverri mynd sem hún birtist, sé öfl-
ugasta hvötin til þess að breyta heiminum til batnaðar.
Getur oss þá ekki skilist, að það sé til einhvers gagns
að trúa á hið góða — að betra sé að vera bjartsýnn á lífið,
en bölsýnn og vondaufur um sigur og framgang hins góða?
Merkur brezkur rithöfundur1) fer svofeldum orðum um
bjartsýni kristindómsins: >Það var kenning hans (þ. e. Krists),
að þeir sem trúi á góðleik, verði hans ekki aðeins sjálfir að-
njótandi, heldur skapi hann«. Þarna er því haldið fram, sem
kristilegri kenningu, að trúin á hið góða, skapi hið góða.
Með öðrum orðum, að þeir sem bjartsýnir séu á hið góða,
geri sig að samverkamönnum Guðs til eflingar því.
Það eru nokkur ár síðan ég las nefnd ummæli hins brezka
höfundar, en þau hafa fest í huga mér og mér finst að ég
með hverju ári sannfærist betur um, hve sönn þau séu og
hve nákvæmlega þau séu í anda Jesú Krists, sem bjartsýn-
astur var allra á hið góða, og sem mestu hefir valdið um
allar þær breytingar, sem beztar hafa síðan orðið og djúp-
tækastar til þroskunar mannlífinu.
Það er sannreynd, að ekkert bætir eins mannlífið og eykur
mönnum mátt, eins og mikil trú á sigur hins góða, — eins
og vonleysi og bölsýni aftur á móti gerir menn vanmáttuga
og úrræðalitla.
Hér er um líislögmál að ræða. Trúleysið er eins og myrkrið,
sem dregur úr ölium vexti og deyðir alt líf, ef það fær að
ráða og ríkja. En trúin er aftur á móti eins og ljósið, sem
veitir öllu lífi hin nauðsynlegu skilyrði til vaxtar og þroska.
* *
*
1) F. R. Barry, í bókinni „Christianity and Fsychologv“, sem kom
út í London '9?3.