Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 122
Preitafélagsritiö.
Rómversk-katólska kirkjan.
113
bá og undanlátssamasti, gagnstætt því sem framkoma hans
var heima fyrir. Enda þótt frakkneska lýðveldið væri alt annað
en vingjarnlegt í garð kirkjunnar, er það m. a. gerði krist-
munka útlæga og tók trúarbragðakensluna úr skólunum,
hvatti Leó XIII. frakkneska biskupa og katólska menn til að
viðurkenna lýðstjórnarfyrirkomulagið. En sú undanlátssemi var
ekki meira metin af Frökkum en svo, að þeir gerðust með
ári hverju óbilgjarnari í garð trúarreglnanna og hinna guð*
rækilegu félagsstofnana.
Stjórnkænsku Leós XIII. hefir annars löngum verið við-
brugðið og það naumast um skör fram. Því að þar var hann
vafalítið meðal fremstu manna samtíðar sinnar, enda þótt
honum lánaðist ekki að ná aftur neinu af hinu forna veraldar-
valdi páfadómsins. Hann átti í samningum við ýmsa af þjóð-
höfðingjum kristninnar, en hann átti líka í samningum við
Soldán Tyrkja, við Shah Persa og við keisara Kínverja og
lapana. Bæði út á við og inn á við óx vegur páfastólsins
um daga Leós XIII., svo að segja má, að hann væri aldrei
meiri á 19. öldinni en um hans daga. Þó mátti á ýmsu sjá
fyrirboða þess, að erfiðir tímar fyrir hina katólsku kirkju væru
framundan, eins og þá líka kom í ljós á dögura eftirmanns
hans á páfastóli, Píusar X. páfa (1903—14).
V.
Undir lok aldarinnar hafði kali Frakka í garð páfastólsins
aukist mjög við það, að uppvíst varð, að klerkhollir stjórnmála-
menn áttu í makki við þann flokk innan frakkneska herliðsins,
sem var fjandsamlegur í garð lýðveldisins (sbr. Dreyfus-málið
alræmda). Árið 1901 komu út lög, sem fyrirbuðu öllum guð-
ræknisfélögum, sem ekki væru viðurkend af ríkinu, alt skóla-
hald fyrir almenning. Þetta varð forspil þeirra viðburða er
skullu á árið eftir að Leó XIII. andaðisi. Katólskir þjóðhöfð-
ingjar höfðu ekki til þessa getað sótt heim Ítalíukonung; því
a'^ þeim var skylt að lita svo á, að Rómaborg hefði með
ólogum gengið undan páfanum, sem enn væri þar einn réttur
Viirdrotnari. Þegar því Frakkaforseti Loubet hirti ekki um