Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 139
130
Ásmundur Guðmundsson:
Prestafélagsritið..
á hlaupum, enda eru íslendingar seinteknir. Menn þurfa að
minsta kosti að þekkja prestinn sinn svo náið, að þeir viti
með vissu, að hann sé maður, sem örugt má treysta. Þá fyrst
getur fullur trúnaður orðið í milli. Við það lærir presturinn
að skilja söfnuð sinn og verða samgróinn honum, og boða
honum þannig kristindóminn, að hann nái til hjartnanna. Hann
finnur það betur og betur, að ekkert, sem varðar heill safn-
aðar hans andlega og líkamlega, er honum óviðkomandi, og
að hann verður að reyna að vinna mönnum í hvívetna hjálp
og bót. Á þennan hátt hefir prestastéttin íslenzka orðið þjóð-
inni að ómetanlegu liði á liðnum öldum og alt til þessa dags-
Góðir prestar hafa verið beztu og giftudrýgstu leiðtogar
alþýðunnar. Þeir hafa flutt henni kristindóminn í orði og verki.
Þeir hafa tekið þátt í kjörum hennar, stutt að mentun hennar
og gerst brautryðjendur að ýmsum þörfum framkvæmdum.
Þeir hafa á þann hátt orðið beztir menningarfrömuðir. Þeim
hefir auðnast þetta af því, að þeir hafa lifað svo nánum
samvistum við safnaðarfólk sitt. Þegar mest hefir á reynt,.
hefir verið leitað til þeirra, og þeir þá jafnan verið boðnir og
búnir til hjálpar. Þá hafa þeir bezt getað sýnt það, að þeir
hafa hvern einstakan í huga við starf sitt, en ekki aðeins
söfnuðinn í heild sinni, og að þeir vilja vera vinir hvers og
eins og leggja mikið á sig fyrir hann. Þá hafa þeir eignast
traust, sem ekkert hefir haggað síðan, og oft lagt grundvöll-
inn að kristindómi sóknarbarna sinna. Trúarlífi þeirra hefir
orðið það hinn mesti styrkur að hafa prestinn og heimili hans
hjá sér. Prestar hafa sagt mér það, að þá teldu þeir mesta
giftu fylgja starfi sínu, er þeir ræddu í trúnaði við safnaðar-
menn einn og einn í senn, eða héldu í höndina á ungu barni
og segðu því frá Kristi. Og ég er viss um, að það er réth
Bezta starfið er oft unnið í kyrþey, svo að ekki ber á.
„Sorg etr hjarta,
nema segja náir
einum allan hug“.
Presturinn hefir ósjaldan verið sá, er menn kusu að segja alt,