Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 244
232
Frumvörp kirkjumálanefndar.
Prestafélagsritið.
sýndust skilja þetta rétt, og færðust undan að taka uið svo miklu, og
nokkrir blessuðu mig og tárfeldu. Þó )á við, að hann Issakar gamli yrði
mér að ásteytingarsteini. Hann hafði einu sinni snúið á mig, þegar hann
flufti inn 19 öskjur af balsami, en greiddi aðeins lollinn fyrir 9. En
reyndar hafði ég seinna náð mér niðri á honum. Nú kom hann til að
heimta skaðabætur, en bauð mér engar á móti. Þá rann mér í skap, og
eg sagöi, að okkar skuldaskifti væru jöfn, og hvorugur ætti neitt hjá
öðrum. Hann sneri sér þá til brottgöngu og sagði: „Þú verður fljótt
leiður og þreyttur á því að vera Abrahams sonur, þegar þessi nýi vinur
þinn er farinn! Eg hefði vfst átt að flýta mér, til þess að hitfa þig,
meðan þú varst enn undir áhrifunum!" Eg kallaði hann þá til mín aftur,
greiddi honum féð gremjulaust, og sagði: „Ég þakka þér, íssakar, að
þú hefir mint mig á hann. Vegna Jesú, míns nýja vinar, gef ég þér fé
þetta og blessun mína, og megi Quð allsherjar vera þér eins ástríkur
og góður, og Jesús var mér".
— Friður sé með þér! Arni Sigurðsson þýddi.
FRUMVORP KIRKJUMÁLANEFNDAR.
Rélt þykir, að „Prestafélagsritiö" flytji Iesendum sínum nokkurn fróð-
Ieik um frumvörp kirkjumálanefndarinnar, er Iögð voru fyrir síðasta
Alþingi, en ekki ráðið þar til lykta. Gefst áhugamönnnm kirkju vorrar
með því kostur á að fylgjast með í því, sem er að gerast í kirkjumálum
landsins, og eiga þá hægra með að beita áhrifum sínum og stuðla að
heppilegum úrslitum þessara mála.
Frumvörp nefndarinnar eru alls átta og heyra tvö frumvörp undir
hvern aðallið erindisbréfs nefndarinnar. En verkefni nefndarinnar voru
flokkuð í 4 aðalliði, eins og skýrt var frá í síðasta (ellefta) árgangi þessa
rits. Voru aðalliðir erindisbréfsins þessir fjórir:
I. Sfærð og skipun prestakalla, störf presta og prófasta.
II. Launakjör presta, þar á meðal um ábúðarkjör á prestssetrum og
um íbúðarhús á prestssetrum Iandsins.
III. Stjórn kirkjumála, þar á meðal um:
a. Afstöðu ríkis og kirkju.
b. Hversu prestar fá og missa embætti.