Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 184
Prestafélagsritiö. Þjóðin og kirkjan. 175
öllum þeim æsingum og illdeilum, sem stjórnmálabaráttunni
fylgja.
Kirkjan verður að taka tillit til þessa nýja viðhorfs og haga
starfi sínu eftir því. Við prestarnir þurfum að nota hvert
tækifæri sem auðið er, til þess að vinna æskulýðnum gagn
og hafa áhrif á hann til góðs. Og eitt tækifærið er það, að
hafa guðsþjónustur með börnum og unglingum, þar sem því
verður við komið, eins og sumir prestar eru nú farnir að gera.
Þetta mál þarf að taka til rækilegrar íhugunar. Og sjálfsagt
finst mér að að því verði unnið, að þeir menn, sem eru að
búa sig undir prestskap, fái meiri fræðslu um kristilegt æsku-
lýðsstarf og líka tækifæri til að temja sér það á námsárunum
í samvinnu við þá, sem reynslu hafa í þeim efnum.
Ég hefi aðeins bent á þetta afar-þýðingarmikla mál til um-
hugsunar, en get ekki, tímans vegna, tekið það til rækilegri
meðferðar í þetta sinn. — Eitt af því, sem til tals hefir komið
í sambandi við alþingishátíðina er það, að stofna skógræktar-
félag í því skyni, að gróðursetja nýgræðing og hlúa að hon-
um, svo að landið klæðist skógi. Það er fögur hugmynd og
viturleg. Og ekki væri það síður viðeigandi, að kirkjan ásetti
sér að hlúa enn betur að dýrmætasta nýgræðingnum, æsku-
lýðnum, og stuðla að því, að klæða landið þróttmikilli kynslóð
vel kristinna ungra manna og kvenna; ekki ætti árangurinn
af þeirri starfsemi að verða síður heilladrjúgur fyrir þjóðina.
Kirkja íslands er kölluð til þess, að gróðursetja og glæða
anda ]esú Krists í sál hinnar íslenzku þjóðar.
En til þess að hún geti unnið það verk, þurfa þjónar hennar
og starfsmenn að eiga þann anda og láta stjórnast af honum.
Og andi Jesú Krists er andi trúarinnar og kærleikahs, andi
eindrægninnar og áhugans. Það er ekki til neins fyrir okkur
að ráðgast um framkvæmdir og vinna að þeim, nema því
aðeins, að við viljum af einlægum huga gefa þeim anda vald
Yfir okkur sjálfum, og vinna saman eins og þjónar Krists í