Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 248
236
Frumvörp kirkjumálanefndar.
Preslafélagsritiö.
ábúðarkjör presta. Er það merkilegt frv. og skulu hér tilgreindar 1.—2.
gr. og 5.-6., óbreyttar eins og frv. kom frá nefndinni.
1. gr. Ríkissjóður leggur fram árlega, meðan á þarf að halda, kvaða-
lausan styrk til íbúðarhúsbyggingar, úr varanlegu efni, á prestssetrum
landsins.
Skal veita styrk þennan til 2—4 íbúðarhúsbygginga á ári, 10 — 12
þús. kr. til hverrar byggingar, eftir stærö húsa og verði. Auk þess gengur
til húsbyggingarinnar andvirði niöurlagðra bæjarhúsa á prestssetrinu.
2. gr. Auk styrks eftir 1. gr. skal veita Ián úr Kirkjujarðasjóði til
byggingar íbúðarhúsanna. Ska! lánveitingin að jafnaði miðast við áætlunar-
verð hússins, að frádregnu framlagi til byggingarinnar skv. 1. gr., og má
aldrei fara fram úr 8000 kr. á hús.
Lánin ávaxtast og afborgast með 4% á ári. Af því eru 3V2/% vextir
og '/2% afborgun.
5. gr. — 1. Nú er ákveðið að reisa hús á prestssetri samkvæmf lögum
þessum, og skal þá söfnuður kosta allan flutning á útlendu efni á bygg-
ingarstaðinn, frá næsta eða hentugasta viðkomusfað flutningaskipa, sem
tök eru á að dómi ríkisstjórnar. Ennfremur skal söfnuðurinn kosta flutn-
ing innlends efnis og greiða gjald fyrir það, ef gjalda þarf. Sóknarnefndir
skulu kjósa mann til að sjá um framkvæmd verksins í tæka tíð, og jafna
síðan öllum flutningskostnaðinum niður á gjaldendur sem hundraðsgjaldi
af sveitarútsvörum. Nú eru í prestakalli meira en eitt sveitar- eða bæjar-
íélag, og ska! þá fyrst skifta kostnaðinum niður á þau að hálfu eftir
skuldlausri eign safnaðarmanna skv. síðustu skattaskrám, en aö hálfu eftir
tölu safnaðarmanna, innan hvers þeirra. Skulu sóknarnefndir innheimfa
gjaldið hver í sinni sókn, og fylgir því lögtaksrétfur. Ef sóknarnefnd
framkvæmir ekki verkið í læka tið, lætur sóknarprestur, eða trúnaðar-
maður ráðuneytisins, framkvæma verkið, gegn endurgjaldi kostnaðar frá
sóknarnefnd.
2. Sóknarprestur skal Ieggja fram gröft allan fyrir grunni eða kjallara
og tróð til byggingarinnar. Ennfremur skal presturinn greiða það, er
kostnaðarverð hússins kann að fara fram úr áæflunarverði þess.
3. Komi fram skekkja í áætlun, af bersýniiegri vangá húsameistara
eða verðlagsbreytingu, Ieiðréttist áætlunin samkvæmt því.
4. Nú leggur presfur eða söfnuður meira fram til byggingar á prests-
setri, en fyrir er mælt í Iögum þessum, skal ríkissjóður þá leggja fram
jafnt fé á móti, auk styrks samkvæmt 1. gr.
5. Ráðuneytið felur trúnaðarmanni sínum að hafa eftirlit með bygg-
ingunni, og ræður yfirsmið (yfirsmiði) í samráði við sóknarprestinn.
6. gr. Nú er presti skylt að sitja í kaupstað eða kauptúni, og er þá
því sveitar- eða bæjarfélagi skylt að leggja til hentuga lóð undir prests-
setrið, án endurgjalds.
Þar sem söfnuður telur yfir 3 þús. fermdra safnaðarmanna, skal söfnuð-