Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 130
FrcsUfélsgsritið.
Rómversk-katólska kirkjan.
121
canonici). í þessum nýja kirkjurétti er djúp það, sem staðfest
hefir verið milli rómversku kirkjunnar og nýtísku stefnanna,
gert enn óyfirkvaemilegra. Biskupar skulu skipaðir af páfa
einum. Þeir eiga að veita prestaskólunum forstöðu sem æðstu
stjórnendur þeirra og hafa eftirlit með trúarbragðakenslunni í
öllum skólum. Katólsk börn má ekki sendá í aðra skóla en
katólska. Enginn katólskur maður, lærður né leikur, má gefa
út rit irúarlegs eða siðferðilegs efnis án kirkjulegrar rit-
skoðunar. Og prestar mega ekki gefa út rit veraldlegs efnis
eða rita greinar í tímarit eða blöð, nema biskup leyfi. Eng-
inn má án sérstaks leyfis gefa út eða selja, lesa eða eiga
fyrirboðnar bækur. Fyrirboðnar skulu vera allar útgáfur eða
þýðingar heilagrar ritningar, aðrar en katólskar, og eins allar
bækur, þar sem ráðist er á kenningu, stjórnarfyrirkomulag
eða guðsþjónusfu rómversku kirkjunnar. Að rómverska kirkjan
hefir engu glatað af miðalda-sjálfsvitund sinni, má ráða af því,
að Benedikt páfi þáði ekki tilboð, sem honum var gert um
hluttöku í kirkjulegu alisherjarþingi (1920). En ástæðan, sem
hann færði fyrir þessu, var á þessa leið: Sökum trúfræði-
legrar einkunnar sinnar getur rómversk-katólska kirkjan ekki
samið við aðrar kirkjur, svo sem stæðu þær henni jafnfætis.
Páfastóllinn lítur svo á, að öll önnur kristin félög hafi slitið
sig úr tengslum við hina rómversku kirkju, en hún ein sé
beint frá Kristi runnin. Þessvegna getur Róm (þ. e. róm-
verska kirkjan) ekki komið til þeirra, heldur verða þau að
hverfa aftur í skaut hinnar rómversku kirkju.
Annars mótast páfadómur Benedikts mjög af heimsslyrjöld-
inni, og átti hann við marga erfiðleika að stríða hennar vegna.
Sjálfur reyndi Benedikt páfi að vera alveg hlutlaus í styrjöld
þessari og hlaut fyrir það ákúrur, t. a. m. hjá Loisy, sem Iét
sér þau orð um munn fara: að eftirmaður Gregors VII. og
Innocentiusar III. þyrði ekki að taka svari þess, sem hann
vissi rétt vera. En katólskir menn frá báðum hliðum reyndu
að útleggja orð páfa sér í vil.
í sumu tilliti verður ekki annað sagt en að katólskan hafi
grætt á heimsstyrjöldinni. í Frakklandi t. a. m. hefir trúar-