Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 106
Presfafálagsriiiö.
Rómversk-katólska kirkjan.
97
gera sig líklegan til að innleiða þingbundið stjórnarfyrirkomu-
lag í kirkjuríkinu, sennilega þó aðallega til þess að vinna
hylli þegna sinr.a. En þá skall á febrúarbyltingin 1848 og
barst hún einnig til Róms. Páfinn sjálfur varð að flýja og
lýðveldisstjórn var sett á fót í kirkjuríkinu (1849). Ári seinna
komst þar þó alt aftur í samt lag, fyrir tilhjálp frakkneskra
og austurríkskra hersveita, og Píus páfi gat horfið aftur heim
til höfuðborgar sinnar (1850). En það, sem gerst hafði, var
þess eðlis, að honum stóð upp frá þessu beygur af öllum
frelsishreyfingum, enda var hann alla tíð upp frá þessu mjög
ákveðinn afturhaldsmaður, er meira og minna lét kristmunka
ráða fyrir sig. Hve mögnuð áhrif þeirra urðu á stjórnarárum
hans, sýnir bezt þetta þrent, að hann Iét hafa sig til að gera
kenninguna um óflekkaðan getnað Maríu meyjar að trúar-
setningu, sem öllum katólskum mönnum var gert að skyldu
að viðurkenna, að hann í sérstöku páfabréfi fyrirdæmdi frum-
setningar frjálshyggjustefnunnar (»Syllabus«), en þó um fram alt,
að hann gerði kenninguna um óskeikun páfans að trúarsetningu.
Kristmunkar höfðu jafnan haldið mjög fasllega fram dýrkun
‘guðsmóður* (Maríu) og m. a. kent, að hin heilaga mey
vsri sjálf getin í móðurlífi án nokkurar saurgunar vegna
erfðasyndarinnar. Þessi kenning var þó eldri í kirkjunni en
kristmunkareglan. Elstu kirkjufeðurnir höfðu að vísu allir gert
ráð fyrir, að María mey væri fædd með erfðasynd eins og
aðrir menn. En á 4. og 5. öld er tekið að vefengja það og
sjálfur Ágústínus þorir ekki að taka afleiðingunum af erfða-
6Yndakenningu sinni, þar sem María mey eigi í hlut. Á 12.
öld er þessari skoðun, að María sé fædd án erfðasyndar,
heinlínis hafnað af Bernharði helga frá Clairvaux, og sama
Ssrði Tómas frá Akvínó og lærisveinar hans (prédikarabræð-
ur),
en þess ákafar vörðu þeir Frans frá Assisi og lærisveir.ar
hans (grábræður) þessa kenningu. Kirkjufundurinn í Basel
fyrirskipaði sérstaka hátíð (1439) til minningar um yfirnátt-
vrlegan getnað Maríu og háskólarnir í París, Köln og Mainz
veittu mönnum því aðeins Iærdómsstig, að þeir ynnu eið að
hví, að þeir viðurkendu þessa kenningu. Loks náðist sam-
7