Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 95
86
]. H.: Vald. Briem og Ól. Briem. Pre.taféi«SSriti5.
systkinunum ungu og bróður ykkar, sem í fjarlægð dvelur,
er þið eigið í einu á bak að sjá elskuðum afa og ástríkum
föður. Það er ávalt sárt, er föðurhjarta hættir að slá — þá
er eins og lokist heil veröld kærleika, yndis og ástúðar þeim,
sem eftir sitja, og öll gleðiljós slokni. Eg bið ykkur að gera
það, sem þið getið til þess, að sú trú megi festa djúpar rætur
hjá ykkur systkinunum, að fráfall ykkar ástríka föður hafi ekki
síður verið náðarráðstöfun himnaföðursins en fráfall ykkar há-
aldraða afa. Takist ykkur fyrir guðs náð að trúa því og treysta,
enda þótt þið skiljið ekki fremur en vér, sem eldri erum, þann
skaparans dóm, sem hér hefir verið uppkveðinn, þá mun það
mýkja sorgina, sem nú nístir hjartað og gera ykkur söknuð
ykkar Iéttbærari. Minnist fyrirheitisins, sem gefið er þeim, sem
mörgum hafa vísað á réttan veg og látið tilhugsunina til þess
hugga yður og hugsvala í þungum raunum ykkar. Góður guð
blessi ykkur og varðveiti og láti fagurt dæmi föður ykkar
og afa lýsa sem himingeisla á lífshimni ykkar um ókomna
æfidaga. Hann blessi einnig þetta heimili, sem nú stendur
eftir, forstöðulaust, heimilisfólkið alt og blessi því minningarnar
um hinn látna húsföður, sem öllum vildi svo vel. —
Og svo kveð ég ykkur báða í nafni íslenzkrar kirkju og
kristni, þið trúföstu og skylduræknu starfsmenn og samverka-
menn í víngarði droítins vor á meðal, og flyt ykkur báðum
hjartfólgnar þakkir fyrir það starf, sem drottinn gaf ykkur að
vinna á meðal vor, ríki sínu til eflingar, eftir þeirri náð, sem
hvorum ykkar var gefin. Drottinn gleðji sálir ykkar í dýrðar-
himni sínum og láti sína náðarásjónu lýsa yfir ykkur. Drottinn
blessi söfnuði ykkar, sem þið helguðuð starfskrafta ykkar.
Hann blessi kirkju lands vors og gefi henni sem flesta góða
og skyldurækna þjóna, sem með alúð og kostgæfni vísa öðr-
um á réttan veg. Hans náð og trúfesti sé með oss öllum nú
og að eilífu. Amen.