Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 160
PreatafélagsriHð.
Trúarbragðafræðsla í shólum.
151
fram yfir lélegt kver, að það hjálpar betur til að dylja háska-
semi þeirrar aðferðar.
Þó að ég stingi upp á því að Iosa kristindómsfræðsluna
úr viðjum gamla fyrirkomulagsins, hugsa ég mér hana þó
fara fram í skólunum. Er það meðal annars vegna þess, að
ég lít svo á, að það gæti verið skólunum holt, að stunduð
væri innan vébanda þeirra ein námsgrein, þar sem einvörð-
ungu væri stefnt að þroskanámi — uppeldi. Mætti það
auðveldleaa verða til þess, að svo yrði gert í fleiri greinum,
er frá liði.
Hið fyrsta, sem þá er að gera, er að nema það ákvæði úr
reglugerð skólanna að kristinfræði sé prófnámsgrein. Þar til
heyrir einnig, að öll ákvæði námsskrár og fræðslulaga um það,
hvað og hve mikið í kristnum fræðum nema skuli, falli burt.
I stundaskrá skólans skal aðeins tekið til, hvenær fjalla skuli
um kristin fræði. Bezt væri að svo miklu leyti, sem unt er,
að það væri síðasti tími á daginn, til þess að ekki sakaði þó
fram yfir drægist, því vel er hugsanlegt að einmitt þá fyrst
væri að komast rekspölur á starfið, er stund er í þann veginn
að verða lokið. Með þessu væri þá kennurum og nemendum
fengið svo mikið starfsfrelsi, sem unt er í skóla, sem að öðru
leyti er bundinn við námsskrá, stundaskiftingu og námsgreina-
skiftingu.
Til þess ennfremur að gera afstöðu nemandans frá önd-
verðu siðferðilega og persðnulega gagnvart þessu viðfangs-
efni, þyrfti að nema það ákvæði úr gildi, að kristinfræði sé
skyldunámsgrein í skólanum. Kennarinn verður að vinna
börnin til þess að sinna þessari námsgrein, vinna áhuga þeirra
til þess að sinna henni. En það varðar ákaflega miklu fyrir þau
sjálf og alt síðara starf kennarans, að það sé frjáls viljaathöfn
af þeirra hálfu. Mörg munu koma þegar í stað, önnur fyrir
tilmæli og frásögur kunningja sinna, mörg ekki. Skólinn, eða
kennarinn mætti aldrei sýna það í neinu, að litið væri niður
á þau börn eða haft horn í síðu þeirra. Fjarvera þeirra myndi
oft stafa af því, að þörfin til þess að sinna trúarlegum við-
fangsefnum, er ekki vöknuð. En hún getur vaknað hvenær