Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 119
110
Jón Helgason:
Pr«mfélag«ritiö.
hélt hann því fram, að úr öllum félagslegum vandamálum eigi
að leysa eftir leiðbeiningum kirkjunnar og páfans. Hann vildi
að stofnuð væru katólsk verkmannafélög, sem nytu leiðsagnar
biskupanna. Auk þess sem hann, eins og áður segir, lagði
ríkt á við menn, að fylgja >gullvægum vísdómi* Tómasar frá
Akvínum í guðfræðinni og heimspekinni, eins lagði hann á-
herslu á, að menn við rannsókn ritningarinnar fylgdu latnesku
þýðingunni löggiltu (Vulgata) og löggiltum skýringum hinna
fornu kennifeðra. Ritskoðun beitti hann engu síður en for-
verar hans, og ýmsir af beztu mönnum kaíólsku kirkjunnar
fengu rit sín bönnuð fyrir það eitt, að þeir vildu styðja að
sættum annars vegar með kirkjunni og ítalska konungsríkinu,
en hins vegar með kirkjunni og samtíðar-menningunni. Þó má
telja Leó páfa til gildis, að hann heimilar vísindamönnum að-
gang að skjalasafni Vatíkan-hallarinnar, sem áður mátti heita
lokað fyrir vísindamönnunum. Varð þeíta mjög til að efla
söaulegar vísindaiðkanir um daga Leós páfa. Til þess að efla
guðræknislífið með katólskum mönnum hélt Leó páfi mjög
sterklega fram dýrkun Maríu. f mörgum af umburðarbréfum
hans er að þessu vikið og dýrkun Maríu brýnd fyrir mönn-
um svo sem hið mikilvægasta atriði sannrar katólskrar guð-
rækni. Á jafn-erfiðum tímum og þeim, sem þá standi yfir,
sé ekkert jafn öflugt og affarasælt eins og það að ná með
barnslegri guðrækni hylli hinnar miklu móður Guðs, Maríu
meyjar, sem flytji oss frið við guð og veiti oss himneska náð.
Hún sitji á himneskum veldisstóli sínum, á hátindi máttarins
og dýrðarinnar, til þess að láta mönnunum í té vernd sína
og aðstoð á erfiðri og hættulegri göngu þeirra til hinnar
eilífu borgar (þ. e. >hinnar himnesku Jerúsalem«). »Eins og
enginn kemur til föðursins nema fyrir soninn, eins kemst ná-
lega enginn til Krists nema fyrir móður hans«. Alveg sér-
staklega er Maí-mánuður helgaður Maríu-dýrkuninni og hver
sá, er með sérstökum guðræknisæfingum lætur hinni allra
sælustu mey lotningu í té, hlýtur 300 daga syndakvittun fyrir
hvern dag í þeim mánuði, sem hann er að slíku sálubótar-
verki. Pílagrímsgöngur til þeirra staða, þar sem álitið var að