Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 271
Prestafélagsritló.
Erlendar bækur.
259
Kirkesag". — G. E. C. Gads Forlag. Köbenhavn 1930. — 106 b!s.,
prýtt fjölda mynda.
Efni bókar þessarar er: „Erfaringer fra mine Visitatsrejser", eftir
biskup vorn. „Lidt om en Præsts Embedsrejser i det nord-östlige Is-
land“, eftir ritstjóra Prestafélagsritsins. „Fra en Præstegærning", eftir séra
Þorstein Briem. „Fra Arbejdet blandt Börnene“, eftir ]ón Helgason rit-
stjóra „Heimilisblaösins" og „Ljósberans". „Daabsrejse til Laxárdalen",
eftir séra Gunnar Arnason. „K. F. U. M. paa Island", eftir Steingrím
Benediktsson leiðtoga K. F. U. M. í Vestmannaeyjum. „ Aabningstale ved
Höjskolesemestrets Begyndelse", eftir Sigfrygg Guðlaugsson prófast. „De
islandske Menigheder i Amerika'1, eftir séra Friðrik Hallgrímsson. „I
Anledning af det islandske Altings 1000 Aars Jubileum", eftir Ófeig Vig-
fússon prófast. „Ðiografiske Oplysninger om Bogens Forfattere", eftir
séra Þórð Tómasson.
Hér er séra Þórður Tómasson aftur að verki. Hann hefir safnað til
bókarinnar, efni og myndum, og kynnir hvern af íslenzku höfundunum
fyrir dönskum lesendum. —
Jafnframt vil ég benda á ágætlega ritaða grein eftir séra Þórð um
Hallgrím Pétursson, sem birtist f Tímaritinu „Dansk Udsyn. Tidsskrift
udgivet af Foreningen „Askov Lærlinge" 1929, og nefnist: „Hallgrímur
Pétursson, Islands store Passionssalmist“. — Enn fremur á grein eftir
sama höfund í „Dansk-islandsk Samfunds Aarbog 1929--30", er nefnist:
„Fra Islands Kirkeliv. Et Tilbageblik over det sidste Par Aar“. — Þá
má ekki gleyma að minnast á blaðið: „Dánsk-islandsk Kirkesag“, nr.
4 1929 og nr. 1—3 árið 1930. Er, eins og vant er, mikið af blaði þessu
skrifað af séra Þórði, með hinni alkunnu velvild og hlýju til kirkju
vorrar og þjóðar og með hinum alþekta áhuga hans á því að fræða
danska lesendur um hagi vora og bókmentir.
Þegar litið er yfir alt þetta, sem hér á undan er greint, og jafnframt
minst þess, hver drengur séra Þórður hefir reynst fjöldamörgum Islend-
ingum, sem til Danmerkur hafa komið, þá finnum vér bezt, í hve mikilli
þakkarskuld vér stöndum við þennan vin vorn, sem í öllu sýnir það, að
hann elskar þjóð vora og vill ávalt hennar sóma.
Skat Hoffmeyer Dr. theoi.: „Tilvaerelsens Sammenhaeng belyst af
britisk Tænkning“. — Gyldendalske Boghandel — Nordisk Forlag.
Köbenhavn 1929. — 215 bls.
Þetta er merkileg bók, sem á brýnt erindi til allra þeirra guðfræð-
inga, er vilja vita skil á því, hvernig enskir heimspekingar hugsa og
skrifa um samband trúar og vísinda á þessum síðustu tímum. Eru margar
eftirtektarverðar hugsanir, sem koma fram hjá þeim og verðar eru þess,
að kirkjunnar menn kynnist þeim.
Bókinni er skift í sex aðalkafla og er sérstaklega fróðlegt að lesa