Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 43
36
Francis Vounghusband:
Prestafélagsriitö.
fræðingar erum, þarf ekki að miklast sú útsýn. í augum
vorum ber stjörnufræðingur sjálfur með lífi sínu, hug og ást,
miklu ljósar vitni um hið sanna eðli alheimsins, heldur en
allar stjörnurnar, þó margar séu.
Ágiskanir stjörnufræðinganna nú á dögum um hinstu örlög
alheimsins eru í hæsta lagi aðeins bráðabirgða-niðurstöður,
en ekki jafn áreiðanlegar og það, að vér sjáum sólina setjast
hvern dag. Vér þurfum ekki að meta þær alt of mikils. Þær
eru ekki nógu áreiðanlegar til þess að eyðileggja trú vora
á það, að heiminum sé stjórnað af góðu valdi og að góðu
marki.
Hvorug torfæran, sem virðist vera, á leiðinni til þeirrar
trúar, að heiminum sé stjórnað að góðu marki, er því ófær.
Þær hverfa báðar, þegar nær er komið. Það þarf hvorki að
skelfa oss, að til er þjáning og böl í veröldinni, né að efnis-
heiminum er stjórnað af eðlislögum. Þjáning og böl geta
stutt að því, að æðri gæðum verði náð. Og þótt efnisheim-
urinn láti stjórnast af eðlislögum og sé voldug og afar ná-
kvæm og margbrotin vél, þá getur líf, sál og andi engu að
síðtir veitt þeirri vél líf og fjör, alveg eins og líf og sál og
andi veitir líf og fjör þessum undursamlega gerðu vélum,
líkömum vorum hverjum um sig. Mótbárurnar gegn trúnni á
það, að tilveran sé góð, hafa ekki við gild rök að styðjast.
Og nú skulum vér virða fyrir oss viss jákvæð rök til stuðn-
ings þeirri trú.
Vísindin og heimspekin færast nær og nær því, eins og
vér höfum þegar tekið fram, að skoða alheiminn sem skipu-
lagsbundna heild, — þ. e. a. s. hann er heild, þar sem ein-
stakir hlutar eru í sambandi sín á milli. Hver smá hluti al-
heimsins hefir áhrif á heildina og verður fyrir áhrifum frá
henni; og hver hluti hans hefir á sér að vissu Ieyti mót
heildarinnar, sumir meira, aðrir minna. Hver hluti er með
hennar marki. Hann ber á sér í vissum mæli mynd og yfir-
skrift eðlis heildarinnar. Sumir hlutar hafa á sér fullkomnari
mynd. Aðrir bera aðeins óljósan voit um eðli heildarinnar.