Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 129
120
Jón Helgason:
PrGstafélagsritiö.
reistarmönnum, fjandmönnum kross Krists, sem sækist eftir
jarðneskum munum og hafi magann fyrir sinn Guð«. Árið
1910 fyrirskipaði Píus X. nýjan embættiseið fyrir öll prests-
efni, presta og kennara andlegrar stéttar, þar sem þeir gjalda
jákvæði fyrirdæming páfa á modernisíum og skuldbinda sig
til að halda til æfiloka fast og óbrigðult við trú feðra sinna.
Eins og að framan er drepið á, hafa ýmsir af modernistum
snúið baki við rómversku kirkjunni með öllu. Svo var t. a. m.
um kristmunkaprestinn Bartoli, sem áður hafði verið ritstjóri
hins áhrifamikla blaðs »Civilta Cattolica*. Hann gekk í
Valdensaflokkinn, en hvarf þó þaðan aftur, af því honum
þótti þeir ekki leggja eins mikla áherzlu á Biblíuna og hann
vildi. Einnig má nefna Friedrich Heiler (nú háskólakennara í
Marburg). Hann var dulsinni að eðlisfari og samdi sig því
einkum að þeim meðal modernista, sem hölluðust að dulsinna-
stefnu. En honum urðu það vonbrigði. Hann tók þá að leggja
stund á trúarbragðasögu og við það Iukust upp augu hans
fyrir einstæðri tign Jesú, svo og því, að Lúter hefði fremur
flestum öðrum skilið ritninguna og þær hugsanir hennar, sem
mestu skifta fyrir guðssamband einstaklingsins. Hann hafði
kynst Söderblom erkibiskupi Svía og orðið fyrir áhrifum frá
honum; urðu þau til þess að Heiler lét í Uppsaladómkirkju
íaka sig inn í evangelisku kirkjuna og varð eftir það háskóla-
kennari í Marburg. Þó hefir hann sífelt miklar mætur á
katólsku kirkjunni og hlúir að þeirri hugsjón, að mótmælenda-
stefnan og katólskan renni saman í eitt og sameini í guðs-
dýrkun og lífsskoðun það, sem báðar eigi dýrmætast í eigu
sinni. Aðrir hafa látið undan síga án þess þó að sleppa sann-
færingu sinni, og haldið áfram í kyrþey að vinna að »um-
bótum kirkjunnar á höfði og limum*.
Píus X. páfi andaðist 20. ágúst 1914 — á fyrsta mánuði
heimsstyrjaldarinnar. Var þá kosinn páfi í hans stað della
Chiesa kardínáli, maður af göfugum ættum, og tók hann sér
páfaheitið Benedikt XI/. (1914—22). Hið merkilegasta í kirkju-
legu tilliti, sem gerðist þau 8 ár, sem hann sat að völdum,
var, að þá var lokið endurskoðun kirkjuréttarins (Corpus juris