Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 84
Presfafélagsritiö.
Eining kirkjunnar.
77
Hvernig sem þessar samningaumleitanir fara, þá hafa þær
vakið marga lil umhugsunar um það, hvort þessi stífni og
fastheldni við gamla siði sé ekki í raun og veru óþörf, hvort
andi Guðs þurfi að fara eftir farvegum, sem menn hafa búið
honum, eða hvort ekki muni sanni nær, að hann veitist
hverjum þeim, sem opnar huga sinn og sálu fyrir honum.
Guð hefir stundum vígt menn til starfa án allrar aðstoðar
purpuraskrýddra biskupa.
VI.
Það böl, sem sundrung kristinnar kirkju leiðir af sér, er
mikið og margþætt. Ut á við sætir kirkjan aðhlátri og lítils-
virðingu þeirra þjóða, sem hún umgengst og er að reyna að
kristna. Þær vita ekki, hverju þær eiga að trúa, þegar ef til
vill fimm trúboðsfélög starfa á sama staðnum og keppast við
að sannfæra menn um það, að hvert þeirra um sig hafi allan
sannleik fagnaðarerindisins og þessvegna einkarétt til að
stofna kirkjur. Eða hverju ættum vér að trúa, ef fimm menn
flyttu oss sömu fregnina, sinn með hverju móti, t. d. að fregnin
væri sú, að maður hefði slasast, og einn segði, að hann hefði
handleggsbrotnað, og annar, að hann hefði fótbroínað, og þriðji
enn annað, o. s. frv.? Trúboðsfélög, sem keppa hvert við
annað, fara nokkuð líkt að. Þau rýra áhrif alls trúboðs.
Brent biskup fórust orð um þetta í ræðu sinni á kirkju-
þinginu í Lausanne í ágúst 1927 á þessa leið: »Þá kröfu
verður að gera til kristinna þjóða, að þær komi skipulagi á
hjá sér sjálfum, til þess að útbreiða ekki kirkjudeilur sínar í
Austurlöndum og ræna þar með fagnaðarerindið valdi sínu og
gefa steina fyrir brauð. Hin mörgu trúboðsfélög í Kína eru
álíka skaðleg kristindóminum þar, eins og borgarastyrjöldin er
friðsamlegum störfum og framgangi þjóðarinnar*.
Og biskup einn á Indlandi lýsir ástandinu þar á þessa
leið: »Fjögur samkomuhús til guðsþjónustuhalds eru bygð í
sömu borginni, svo nálægt hvert öðru, að ekki eru hundrað
stikur á milli. Hvert þeirra um sig er hálftómt flesta helgi-
daga. Prestarnir búa allir við sultarkjör og eyða mestum tíma