Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 142
Prestafélagsritiö.
Framtíð þjóðkirkjunnar.
133
Það er ekki á færi annara en stöku afburðamanna að sam-
eina hvorttveggja. En að smábúskap gæti presturinn unnið í
hvíldarstundum sínum sér til hressingar og ánægju. Hann
þyrfti ekki að bera áhyggjur út af honum, heldur gæti hann
samrýmst ágætlega prestsstarfi og meira að segja stutt. Prestur,
sem býr, mun oft skilja betur sveitafólkið í kringum sig, vinna
því meira gagn og festa hjá því dýpri rætur. Svo er honum
nauðsynlegt að fá verkefni fyrir börn sín, er þau komast á
legg, sé hann fjölskyldumaður. Og loks mun slíkur búskapur
helzt geta létt honum afkomuna.
í minstu og hægustu prestaköllum verði sameinuð prests-
staða og kennarastaða, sé þess kostur aðstöðunnar vegna.
Og því er sumstaðar svo farið. Annarsstaðar hafi prestar á
hendi kristindómsfræðslu barna í skólum, eftir því sem við
verði komið. Við það ynnist fyrst og fremst veruleg bót á
því, sem mest mun áfátt í starfi ýmsra presta víða um land,
og árangurinn yrði meiri en unt er að gera sér í hugarlund.
Góður prestur á greiða leið að hjarta hvers barns í söfnuði
sínum og getur þannig lagt traustan grundvöll að kristindómi.
Hversu erfitt, sem starf hans kann að ganga að öðru leyti,
getur hann verið öruggur um það, að hann er að ala upp
söfnuð, sem vill vinna með honum fyrir málefni Krists. Og
fullorðna fólkið mun virða það, sem vel er gert fyrir börn
þess, og fá hlýrra hug til prestsins síns eftir en áður. Þetta
er aðalatriðið, að svo mun bregða ljóma á leið prestsins.
En fjárhagslega séð, má greiða honum fyrir kristindóms-
fræðslu hans, alstaðar þar sem kennaralaun sparast fyrir
starf hans. í kauptúnum gæti slíkt víða komið fyrir. Stunda-
kensla hefir ósjaldan sparað þar fastan kennara. Ef til vill
kunna einhverjir að segja, að kristindómskensla í barnaskól-
um sé eins og hvert annað aukastarf fyrir prestinn, en það
er hinn mesti misskilningur. Hún heyrir beinlínis til aðal-
starfi hans, því er mestu varðar. Presturinn má blátt áfram
ekki missa af því að kenna kristin fræði í barnaskóla, þar
sem honum er það unt. Ég tel það hafa verið mikið lán
fyrir mig, að fá að byrja prestsstarf hér á landi með því, að