Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 126
Pr«stafél*gsritiö.
Rómversk-katólska kirkjan.
117
hann bæri að skoða sem lausnargjald, sem djöflinum hefði
verið greitt, á miðöldunum hefði hann verið talinn fullnægju-
gjörð Guðs vegna, en nú á dögum skýrðu menn hann út frá
kærleika Guðs. Aðalleiðtogi frakknesku modernistanna varð
Alfred Loisy (síðan 1909 kennari í trúarbragðasögu við
Parísar-háskólann College de France). Höfuðrit hans var
»Fagnaðarerindið og kirkjan* (L’evangelie et l’église, 1902).
Hann heldur þar fram mjög róttækri biblíurannsókn, en and-
mælir um leið sterklega Þjóðverjanum Adolf Harnack og
mótmælendastefnunni yfirleitt. Katólskan sé í beinni línu fram-
hald frumkristindómsins. Hann heldur því fram, að Jesús hafi
lifað í gyðinglegum hugmyndaheimi samlanda sinna og þar
hafi heimsslitakenningin verið aðalatriðið. Sjálfur hafi Jesús
vænzt nálægra heimsslita og trúað á endurkomu sína í skýj-
um himinsins, Fyrirheit hans um hið komandi ríki hafi ræzt
þar sem sé hin katólska kirkja. Hins sanna kristindóms sé að
Ieita í fyllingu lífsins og heildarmynd, í trénu, en ekki í frjó-
anganum, sem tréð hafi vaxið upp af. Hann heldur því fram,
að kristindómurinn hafi tekið upp margt úr heiðnum trúar-
brögðum, en svo hljóti að vera. Tréð á jörðinni fái ávalt nær-
ingu frá jarðveginum, sem að því liggur. Sakramentin sjö hafi
Kristur vitanlega ekki innsett, en þau séu runnin af rót hugs-
ana hans og eigi að sýna oss hvernig alt lífið sé undir helg-
andi áhrifum kristindómsins. Rit Loisy voru fyrirboðin, en
hann lofaði hlýðni.
A Ítalíu verður skáldið Antonio Fogazzaro (f 1911) til
þess að ryðja modernista-stefnunni braut með skáldsögunni
»11 santo* (»Dýrlingurinn«, 1901). En aðalfulltrúi stefnunnar
verður presturinn Romolo iAurri. Hann héjt því fram, að trúin
ætti sem hjartaafsiaða til Guðs að vera einkamál. Hann var
bannfærður, sagði skilið við kirkjuna, tók að gefa sig við
stjórnmálum og kvæntist.
A Englandi átti modernista-siefnan sinn djúphugulasta full-
trúa, þar sem var Georg Tyrrel (t 1909). Hann var íri að
ætt, hafði alist upp í anglikönsku kirkjunni, en 18 ára tekið
katólska trú og seinna gengið í kristmunkaregluna, en horfið