Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 63
56
Krisiinn F. Stefánsson:
Prestafélagsriiiö.
en það, að fyrsfa árið eftir þingið í Birmingham voru keypt
um 30.000 eintök af nefndarskýrslunum og kostuðu þær allar
(12) um 35,00 kr., og vert er að geta þess, að mest seldist
af skýrslunum um »eðli Guðs og tilgang Guðs með heiminn*.
Höfuðtilgangur »copec« er sá, að vinna að úrlausn hinna fé-
lagslegu vandamála á kristilegum grundvelli. Ekkert mannlegt
á að vera kirkjunni óviðkomandi. Fyrir því hefir enska kirkjan
lagt út í bardaga við atvinnuleysi, húsnæðisvandræði, — yfir
höfuð barist fyrir bættum lífsskilyrðum mannanna, rniklu öfl-
ugar, en kirkja nokkurs annars lands. En áhrifin hafa borist
yfir til meginlandsins, og þar er nú í mörgum löndum starfað
í anda >copec«. Geta má þess, að kirkjuþingið í Stockhólmi
1925 er beinn ávöxtur fundarins í Birmingham árið áður.
Það er sannmæli, sem ritari »copec«, konan Lucy Gardner,
hefir sagt: »Sú sannfæring fer nú um hinn kristna heim, að
Kristur sé konungur yíir öllu lifandi, og vilji hans og andi
verði að ríkja á öllum sviðum þjóðlífsins*.
Það yrði of langt mál að skýra hér nákvæmlega frá inni-
haldi allra copec--skýrslnanna, sem eru samtals um 1800 bls.
í átta blaða broti. Ég læt mér því nægja, að gefa stutt yfir-
lit yfir niðurstöður þingsins á þeim vandamálum, sem hafa
grafið mest um sig í þjóðlífi voru, og kirkjan og prestarnir
horfast í augu við, og hljóta að verða að taka afstöðu til.
I. Samiíf einstaklinganna.
1. kynferðislífið.
1. Kynferðisvandamálið, sem nú er svo ofarlega á baugi,
þokast með vaxandi jafnrétti beggja kynja nær og nær
nýrri lausn, með því að jafnrétti karla og kvenna til starfa
hefir göfgandi áhrif á kynferðislífið.
2. Kærleikur og hreinleiki eru óhrekjanlegar kröfur Nýja-
testamentisins. Lauslæti og festuleysi í ástamálum, er
ósamrýmanlegt þeim kröfum.
3. Börnin verður að ala upp til hreinleika og staðlyndis,