Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 261
Pí'estafélagsritiö.
Prestafélagið.
249
aö því, að frv. nefndarinnar mættu verða að lögum, í þeirri mynd, er
kirkjunni mæfti bezt henta. Með bréfunum til prestanna fylgdu öll frum-
vörpin, ti! þess að þeir gætu kynt sér þau sem bezt, en próföstum höfðu
verið send þau um hendur biskups.
f bréfum þessum er einnig hreyft við þvi máli, sem kirkju vora varðar
nú einna mest, hvernig tekið er í. Það er fækkun prestakalla. Eru ailir
þjónandi prestar landsins beðnir um að bera fram á safnaðarfundum i
öllum sóknum sínum þessa spurningu til umræðu og afkvæðagreiðslu:
„Vill söfnuðuvinn, að sókn hans verði lögð til annars prestakalls?“ —
og senda formanni „ Prestafélagsins" sem fyrst eftir fundina skýrslu um
afgreiðslu þessa máls. — 011 svör, sem komin eru við spurningu þessari,
eru eindregið neitandi. En þeir, sem eftir eiga að senda svör sín, erubeðnir
að láta ekki bregðast að senda þau sem fyrst, alveg eins frá safnaðar-
fundum, sem haldnir verða í haust. Enginn veit, hver áhrif slík svör geta haft
á framtíðarráðstafanir í þessu máli. Má vænta, aö mönnum verði það Ijósara
eftir aö þeir hafa iesið erindi séra A. G. um „Framtíð þjóðkirkjunnar".
Þessar tvær tillögur voru samþyktar á aðalfundi:
1. „Aðalfundur Prestafélags íslands 1930 lýsir því yfir, að hann feiur
ÖII frumvörp milliþinganefndar í kirkjumálum nauðsynleg og heillavænleg
fyrir kirkju vora, og skorar því á næsta Alþingi að samþykkja þau“.
2. „Jafnframt ályktar fundurinn að kjósa 3 manna nefnd til þess í
samráði við stjórn félagsins að vinna að framgangi þeirra".
í nefndina voru kosnir með 41 atkv.: Séra Guðmundur Einarsson,
séra Eiríkur Albertsson og séra Brynjólfur Magnússon.
3. Fjórar spurningar.
Félagsstjórnin sendi öllum próföstum og prestum landsins eftirfarandi
spurningar, með tilmælum um, að þær væru ræddar á prestafundum úti
um land, og einnig á héraðsfundum og á safnaðarfundum þær af spurn-
ingunum, sem einkum varða söfnuðina. Tilætlunin var einnig sú, að þær
væru ræddar á aðalfundi félagsins í vor, en því miður var fundartíminn
of naumur til þess, að úr því gæti orðið. — Sumstaðar hafa þær verið
feknar ti! umræðu á fundum í vor, en fyrir þá, sem ekki hafa enn getað
komið því við að ræða þær á fundum, bíða þær betri fíma.
I. Hvað getur kirkja vor Iært af kirkjulegri einingarstarfsemi nútímans?
II. Hver ráð eru til þess, að meiri og betri samvinna geti tekist:
1) Milli „Prestafélags íslands" og deilda þess og einstaklinga? 2) Milli
presta og safnaða? 3) Milli prestanna og ýmsra félaga innan safnaðanna?
4) Milli kirkju vorrar og ríkis?
III. Hvað gefur kirkja vor gert til þess að ná betur til æskulýðsins
með kristileg áhrif, bæði til sveita og í kaupstöðum vorum?