Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 183
174
Friðrik Haligrímsson:
Prestafélagsriíið*
armesta og vandasamasfa verkið, sem til er«. Dómarinn
hugsaði sig um stundarkorn og svaraði svo: »Þýðingarmesta
og vandasamasfa verkið sem til er, er það, að koma því til
leiðar, að andi Jesú Krists og hugsjónir hans verði ríkjandi
í lífi mannanna«.
Þarna blasir við okkur þýðingarmesfa verkefnið. Fjölda
margir eru algerlega sinnulausir um frúmál, og það þarf að
vekja þá. Kirkjan þarf að leggja aukna áherzlu á þann vakn-
ingarboðskap, að koma öllum í skilning um það, að þeir
hafi þörf fyrir Krist og fagnaðarerindi hans. Við prestarnir
þurfum að vanda sem bezt boðskap okkar með tilliti til þess-
arar miklu þarfar. Og við eigum ekki að flytja boðskap okkar
í prédikunarsfólunum aðeins, heldur líka á heimilunum, á
mannamótum, í blöðum og tímaritum, — alstaðar þar sem
okkur gefst fækifæri, eigum við að leitast við að flytja boð-
skapinn um þörf manna fyrir lifandi trúarsamlíf við Guð, —
og hugsa um að flytja hann þannig, að hann fái sem bezta
áheyrn. Við þurfum að verða >brennandi í andanum*, —
gera það að heilögu áhugamáli okkar, að þrýsta þessum
boðskap sem fastast inn í meðvifund fólksins, og biðja Guð
stöðugt og heitt um að hjálpa okkur til þess. Hver messu-
gerð á að vera okkur heilagt fækifæri til þess að laða ódauð-
legar mannssálir að föður sínum himneskum og frelsara. Og
við alla samfundi okkar við sóknarbörnin, í gleði og sorg,
eigum við að hafa þefta sama í huga. Þá munu blessunar-
ávextir koma í ljós á sínum tíma.
Og á eitt þýðingarmikið verkefni vil ég að endingu minn-
ast með fáum orðum, og það er æskulýðurinn.
í því efni er viðhorfið nýtt; mikið hefir breyzt á tiltölulega
skömmum tíma. Víðátta prestakallanna gerir prestum mjög
erfitt, ef ekki ómögulegt, að hafa það eftirlit með kristin-
dómsfræðslu æskulýðsins, sem áður átti sér stað; og það er
illa farið, og má ekki versna úr því sem nú er. Freistingar
til gjálífis eru að aukast töluvert á síðari árum. Og svo er
nú líka farið að stofna pólitisk félög meðal unglinga, með