Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 100
Prestafélagsritiö.
Rómversk-katólska kirkjan.
91
reisnar 1830, þar sem Belgar heimtuðu fullkomið sjálfforræði
fyrir sig, sem þá og hafðist fram. Aftur á móti tókst að bæla
niður byltinguna á Ítalíu. Páfarnir voru andvígir öllum frelsis-
hreyfingum, hvort heldur var að ræða um samvizkufrelsi og
prentfrelsi eða um frelsi til vísindalegra rannsókna innan
katólskrar guðfræði.
A Þýzkalandi var nú mest að vinna, því að þar hafði ka-
tólska kirkjan mestu lapað á fyrri tíð. Eðlilega beindist at-
hygli páfafylgis-stefnunnar alveg sérstaklega að Þjóðverjum,
enda kom brátt í ljós, einkum á árunum 1830—40, að þar
var lagt mest kapp á að afla hinni ströngu katólsku fylgi,
og á Prússlandi varð það kapp, sem á þetta var lagt, bein-
línis til þess, að mjög óvingaðist með ríkisstjórninni og páfa-
stólnum. Tilefnið var spurningin um afstöðu kirkjunnar til
sambúðar hjóna, er hvort fylgdi sinni játningu í trúarefnum.
Slík hjónabönd höfðu fyr á tímum verið talin óheimil af páfa-
valdinu, og jafnvel á dögum Píusar VIII. páía hafði verið gefið
út páfabréf (1830) stílað til prússneskra biskupa, sem lagði
blátt bann við slíkum hjónaböndnm, nema alveg sérstakar
ástæður væru fyrir hendi og þá aðeins með því skilyrði, að
börn, sem fæddust í þeim hjónaböndum, fengju katólskt upp-
eldi. Um þetta skilyrði gat Prússastjórn ekki orðið páfastólnum
sammála, enda hafði verið tekið fram í prússnesku grund-
vallarlögunum frá 1794, að foreldrum, er hvort fylgdi sinni
trúarjátningu, skyldi algerlega í sjálfsvald sett, í hvaða játn-
ingu börn þeirra yrðu uppalin. Yrði ósamkomulag með hjónum
um þau efni, skyldu synirnir uppalast í trú föðursins, en dæt-
urnar í trú móðurinnar. Þessu síðarnefnda atriði var 1803
breytt á þá leið, að þar sem foreldrar yrðu sammála um þessi
efni, skyldi öll börnin uppala í trú föðursins, til þess að koma
í veg fyrir áframhaldandi sundurlyndi út af slíku innan fjöl-
skyldunnar. Heimtaði Prússastjórn, að páfabréf þetta frá 1830
Yrði endursent páfanum, til þess að hann mildaði kröfur sínar
hvað þetta skilyrði snertir. En því var illa tekið, enda urðu
páfaskifti um sama leyti (1831), og kristmunkar, sem öllu réðu