Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 235
Prestafélagsritið. Að hverju beindisl æfistarf Jesú?
223
annað, þareð annað einmitt leiddi af hinu. Vegur krossins
væri mannssyninum vegur dýrðarinnar, mannkyninu til dóms
og hjálpræðis.
Margt fleira gæti komið hér til athugunar, t. d. kenning
]esú um gildi mannssálarinnar, mat Jesú á heimsgæðunum,
athugun þess, hverskonar barátta það var, sem Jesús vildi
leiða Iærisveina sína út í, o. s. frv. En hér læt ég staðar numið,
og vísa þeim, er frekari fræðslu vilja leita um þessi efni, til
áðurnefndrar bókar minnar. Hygg ég, að flestum finnist, og það
því fremur sem þeir kynna sér betur heimildir vorar, að alt
beri að sama brunni því til sönnunar, að Jesús hafi ríkasta á-
herzluna lagt á hugarstefnu manna og göfgun lyndiseinkunnar-
innar, hvort sem lífshugsjón Jesú er skoðuð frá sjónarmiði ein-
staklings eða félagslífs.
En með því er ekki sagt, að Jesús hafi látið sér í léttu
rúmi liggja ytri kjör manna og aðstæður. Þvert á móti. Hann
gerir ótvírætt ráð fyrir því, að hvert gott tré beri góðan ávöxt,
og að góður maður beri gott fram úr góðum sjóði. Engir
ættu því að vera fúsari á að sinna og vinna að öllum mann-
félagsumbótum en þeir, sem í sannleika eru lærisveinar Krists.
Engir ættu heldur að vera færari til að vera súrdeig þjóð-
félags síns en þeir, sem drukkið hafa í sig anda Krists og
öðlast hugarstefnu í samræmi við prédikun hans og líferni.
Það er vissulega í meira lagi gallaður kristindómur, sem ekki
vill vinna að því, að bæta mannfélagsmeinin mörgu og göfga
þjóðfélag sitt með réttlæti og kærleika að stefnumiði.
En kristinn maður vill ekki aðgreina hið innra og hið ytra
á þann hátt, að á annað sé lögð öll áherzlan, en hitt van-
rækt eða lítilsvirt. Hann geíur heldur ekki sett hið innra
sem auka-atriði en hið ytra sem hið eina nauðsynlega. Ef
hann fylgir Kristi, skilst honum, að hið fyrsta sé að reyna að
verða góður maður, en af því eigi aftur hitt að leiða, að verða
góður félagsmaður, er starfar og stefnir að bættum ytri kjör-
um og fyrirkomulagi í þjóðfélagi því, er hann lifir í.
Alt sameinar hugsjón Jesú í kærleiksboðorðinu: >Þú skalt