Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 175
166
Friðrik Hallgrímsson:
Prestafélagsritiö.
inn þarf, eins og aðrir, að haida lífinu í sér og sínum. Ég
veit það vel, að þess eru dæmi, að prestar hafa mist allan
áhuga fyrir köllunarverki sínu og farið að stunda önnur störf,
og þá stundum hætt alveg við prestskap, — sem var auð-
vitað alveg rétt af þeim, fyrst þeim var ekki prestsstarfið
hjartans áhugamál. En eins og launakjör presta eru alment
hér á landi, þurfa allflestir þeirra að vinna sér eitthvað inn,
auk embættislaunanna, annaðhvort með búskap eða á annan
hátt, til þess að geta lifað þolanlegu Iífi. Þeir korna margir að
presískapnum allslausir og skuldugir eftir langt og kostnaðar-
samt nám; og svo. þurfa þeir að stofna sér í enn meiri
skuldir til þess að afla sér húsnæðis og farartækja til þess
að geta ferðast um víðlend prestaköll. Getur þá nokkur sann-
gjarn maður láð þeim það, að þeir leggja á sig aukna vinnu
til þess að geta staðið í skilum við þá, sem hafa lánað þeim
peninga? Mér finst, að þeir eigi miklu fremur skilið lof fyrir
það en last.
Eitt af því, sem þjóðinni væri sómi að að gera á þessu
merkisári, er það, að gera ráðsíafanir til þess að bæta þannig
launakjör presta sinna, að þeir gætu gefið sig óskiftir við því
starfi, sem þeir hafa varið miklum tíma iil að búa sig undir
og þrá að fá að vinna. Prestar þurfa að geta aflað sér góðra
bóka og haft næði til lesturs, ef þeim á að geta farið fram í
prestsstarfinu. Þeir mega ekki hafa síöðugar áhyggjur fyrir
daglegu brauði, ef þeir eiga að geta starfað af áhuga og
dugnaði. Þeir þurfa stöku sinnum að geta ferðast, bæði sér
til hressingar og til lærdóms; það er alkunnugt, að vel ment-
aðir og áhugasamir læknar finna hjá sér þörf til þess að
fara utan til þess að kynnast af eigin sjón nýjum lækninga-
aðferðum og auka við þekkingu sína; myndi það ekki líka
gera presta hæfari til þess að inna af hendi meira og betra
starf fyrir söfnuði sína, ef þeir ættu einhvern tíma kost á því,
að kynnast starfi kirkjunnar í öðrum löndum? Eftir eigin
reynslu minni er ég ekki í neinum efa um það.
Fyrir Alþingi voru á síðastliðnum vetri lögð frumvörp til Iaga
um það, að bæta byggingar á prestssetrum, um styrk handa