Skírnir - 01.01.1957, Page 52
50
Hróðmar Sigurðsson
Skírnir
undur þess var sr. Rjarni Arngrímsson, prestur að Melum í
Borgarfjarðarsýslu. Þótti hann ágætur barnafræðari, enda
ber stafrófskverið það með sér. Auk stafrófskversins ritaði sr.
Bjarni og gaf út Nýjar viku- og misseraskipta- og hátíSabænir
(Bjarnabænir), Spurningar, Handhœgt garSyrkjukver, ZJm
garSyrkjunnar nytsemi og þýddi SálarfrœSi eftir J. H. Cam-
pes, og kom sú bók út í Leirárgörðum árið 1800 og mun vera
fyrsta bók í þeirri grein, er út hefur komið á íslenzku.
Nýtilegt Barnagull var nýstárleg og uppörvandi bók. Höf-
undur skiptir því í 26 kafla, einum fyrir hverja viku vetrar-
ins, en tekur þó fram, að ekki sé þar með sagt, að öll börn
geti lokið því á einum vetri. í upphafi kversins ávarpar hann
börnin á þessa leið:
Börn! takið eftir, í dag er föstudagur fyrstur í vetri.
Hingað eigum við að vera komin á fimmtudagskvöldið er
kemur. Skoðið, ekki er vikuverkið stórt, — einungis staf-
rófið, 4 stafir á dag. Við skulum þá byrja, en með því
bænarávarpi fyrst: Guð gefi mér lyst til gott að læra.
Kaflamir í bókinni eru þessir:
1. vika: Stafrófið.
2. vika: Flokkar stafa.
3. vika: Stórir stafir. Atkvæði.
4. —5. vika: Atkvæði.
6.—8. vika: Eins atkvæðis orð.
9.—11. vika: Páll og Jón, tJlfur og lamb, Satt er bezt,
lygð verst (sögur úr eins atkvæðis orðum).
12.—-13.vika: Tveggja atkvæða orð.
14'. vika: Myndin á veggnum, Kettlingurinn (sögur úr
eins og tveggja atkvæða orðum).
15. vika: Þriggja atkvæða orð.
16. vika: Fjögra og fleiri atkvæða orð. Litla stúlkan
vankunnandi (saga).
17. vika: Orsök og verkan (Fróðleiksmolar).
18. vika: Schwabach-letur (afbrigði af gotnesku letri,
kennt við stað í Þýzkalandi). Síðan kemur þessi alkunna
vísa: