Skírnir - 01.01.1957, Side 83
Skírnir
Edvard Grieg
81
1 stuttum, hnitmiðuðum erindum, föstum eins og þau væru
höggvin í stein, stígur lagið gegnum tjáningarríkan flutning
upp að hátindi geðshræringar og kvalar.
Váren er frá hendi skálds og tónskálds verk, sem er tár-
hrein perla í heimi listar vorrar. Hér finnur tónskáldið líf-
taugina í hinni menningarlegu baráttu norsku þjóðarinnar.
Hér birtist í tónverki, hvernig þjáningin gerir manninn til-
finninganæman, fínþroskaðan og skyggnan. Váren er eins og
mild von um dögun sálarinnar, von um lausn þjóðarandans
úr fjötrum, draumur hans um að geta tjáð sig á sinni eigin
tungu. Grieg, sem fannst sjálfum á þessum tímum, að hann
bæri þunga hlekki, gefur oss í þessu verki sönglag, sem er
sérstætt í sinni djúpu tilfinningu og mannlegri þjáningu. —
Sumir lesendanna munu ef til vill hafa séð í Noregi málverk
eftir hinn fræga norska málara Christian Skredsvig, þar sem
kornungur piltur er búinn að smíða sér tréflautu úr selju-
viði og er að reyna að leita tóna hennar við bláa, speglandi
tjörn, rétt áður en trén bruma. Þetta málverk lýsir lista-
verkinu Váren, lýsir hinni tilfinninganæmu leit að dýpstu
verðmætum lands vors og þjóðar.
Den særde (Hinn særði), sem minnir töluvert á tvö
áminnzt lög, hefst með þessum ljóðlínum, sem eru einkenn-
andi fyrir anda kvæðisins: „Mitt hjarta hev vore i livsens
strid, / og mangt eit sár hev det fenge.“ — Skáldið kveður
um raunir sínar -—- „hans eru sorgirnar þungar sem blý“ —
en hann gefst ekki upp. Því lífið sjálft sigrar með hverju vori.
— Bæði ljóð og sönglag er einfalt og sérstætt, titrandi af lífs-
magni.
1 Tytebœret birtir yfir; litblærinn er ljósari; en jafnvel í
þessu lagi er þjáningin undirstraumur, sem að lokum brýzt
út í brennandi ástríðu. —
Innilegur og örlagaþungur er söngurinn Langs ei á, sem
Grieg var búinn að semja lagið við í Harðangri (sumarið
1877). Eftir hæga byrjun magnast tilfinningakenndin; sárar
kvalir leita sér tjáningar, íklæðast sárfögrum tónum, seiðandi
og hjartnæmar, en breytist að lokum í undrunarfullt, hvísl-
andi andvarp.
6