Skírnir - 01.01.1957, Page 91
ARNHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR:
NOKKRIR MÁLSHÆTTIR ÚR MÁLSHÁTTA-
SÖFNUM DR. HALLGRÍMS SCHEVINGS.
Yfirlit.
Verkefni það, sem hér verður gerð grein fyrir, fjallar um
nokkra málshætti úr málsháttasöfnum dr. Hallgríms Schev-
ings.
Markmið verkefnisins var að rannsaka málshætti í söfnum
þessum, er torskildir væru eða afbrigðilegir, og enn fremur
þá, er varðveittu sjaldgæf orð eða orðmyndir, skýra merkingu
þeirra og uppruna.
Málshættina valdi ég í samráði við dr. Halldór Halldórs-
son, bar þá saman við helztu orðabækur yfir íslenzkt mál að
fornu og nýju, orðaskrá orðabókar Háskólans, prentuð íslenzk
málsháttasöfn, nokkur málsháttahandrit og þrjú erlend söfn
af málsháttum.
Tilgangurinn með þessum samanburði var að reyna að
finna hina upprunalegu gerð hvers málsháttar, en jafnframt
að reyna að fá vitneskju um, hverjir þeirra væru íslenzkir
að uppruna, hverjir samnorrænir eða samgermanskir. Einnig
skyldi með samanburði við innlend málsháttasöfn reynt að
fá nokkra hugmynd um samband Schevings við eldri safn-
endur málshátta.
Hér á eftir verður getið þeirra rita, sem tekin voru til sam-
anburðar. Fullt heiti rits og útgáfustaður eða ár verður þó
ekki tilgreint hér, heldur í heimildaskrá hér á eftir, bls. 136
-38. Skammstafana, sem ég hef notað, er jafnóðum getið í svig-
um. Þær orðabækur, sem ég bar málshættina saman við, voru
Lexicon poeticum (Lex. poet.), orðabækur þeirra Guðbrands
Vigfússonar og Fritzners (G.V. og Fr.), orðabók Björns Hall-
dórssonar (B.H.), íslenzk-dönsk orSabák eftir Sigfús Blöndal
(Bl.) og orSaskrá orSabókar Háskóla Islands (Ob.).