Hugur - 01.01.2013, Blaðsíða 56
H | . , | . –
Hlynur Helgason
List og l"!ræ!isskipan
Til umMöllunar eru þrjú íslensk listaverk, eftir Hlyn Hallsson, Ósk Vilhjálms-
dóttur og Libiu Castro og Ólaf Ólafsson, öll gerð árin fyrir kreppuna . Því er
í upphafi velt upp hvort skoða megi verkin sem dæmi um hvernig listin geti orðið
beinn áhrifavaldur, eða fyrirmynd, um hvernig hægt væri að hugsa sér nýstárlega
möguleika lýðræðislegrar skipanar. Lýðræðishugtakið er rætt út frá grundvelli
sínum í klassískri heimspeki Aristótelesar, þar sem þegar birtust margvíslegar
þverstæður en einnig grunnhugmyndin um meðalhóf á milli ólíkra stjórnarhátta
sem enn er lykill að stjórnskipan nútímans. Að því loknu er sjónum beint að Ís-
landi samtímans og Mölbreyttri afstöðu heimspekinga, þeirra Ólafs Páls Jónssonar
og Vilhjálms Árnasonar, og niðurstöðu þeirra um að það þurfi að byggja upp sið-
ferðilega lýðræðisvitund á meðal borgaranna þannig að raunverulega lýðræðislegt
ríki geti orðið að veruleika. Röksemdir þeirra eru gagnrýndar á þeirri forsendu
að það skerði áhrifamátt þeirra að takmarka vitundina við vitund einstaklings-
ins, fremur en að líta á vitundina sem marga og Mölþætta. Þessum hugmyndum
– um flókið lýðræðishugtak, rökræður, borgaravitund og Mölbreyttar hugmynd-
ir um vitund – er í lokin beitt við nánari greiningu á áhrifum og vanköntum
umræddra listaverka. Niðurstaðan er sú að listrænt inngrip sé gagnleg viðbót við
heimspekiumræðuna; þegar listamenn gera tilraun til að takast á við lýðræðið og
lýðræðishugsun á virkan hátt og birta þannig í verki úrlausnarefnin og samfélags-
gerðina.
Myndlist og einkenni krísu
Hlynur Hallsson myndlistarmaður hlaut árið þó nokkra athygli fyrir lista-
verk sem hann gerði í Marfa í Texas. Þar „graffaði“ hann vegg gallerísins meðal
annars með þessum tveimur textum: George W. Bush is an idiot og And Iceland is
banana republic number one. Margir íbúar Marfa brugðust ókvæða við, sem endaði
með því að Hlynur ákvað að ritskoða verkið og mála nýjar setningar sem lýstu
öndverðri skoðun í staðinn.1 Árið hélt Ósk Vilhjálmsdóttir sýningu í Gallerí
Jim Yardley, dálkahöfundur New York Times Mallaði ýtarlega um sýninguna og viðbrögðin við
Hugur 2013-4.indd 56 23/01/2014 12:57:26