Hugur - 01.01.2013, Blaðsíða 68
Hlynur Helgason
umflúin sem $áttur í góðri stjórn ríkis. Við höfum einnig skoðað umræðuna um
lýðræði og þau álitamál og möguleika sem komið hafa upp í tengslum við beit-
ingu þess hjá íslenskum heimspekingum á undanförnum árum. Hér hafa menn
gert sér góða grein fyrir flókinni forsögu hugtaksins og hvernig það getur verið
mótsagnakennt í byggingu sinni. Samt sem áður hefur trúin á mikilvægi lýð-
ræðis legrar stjórnskipanar sameinað íslenska hugsuði í því að finna virkar leiðir til
þess að koma á lýðræðislegri, ef ekki lýðræðislegum, stjórnarháttum. Þar tel ég þó
að grunnhugmyndin um borgarann sem kjarna stjórnhugsunar kunni að glepja
mönnum sýn á flókið eðli nútímastjórnarfars. Þar þurfi öllu heldur að skoða vit-
undarveruna sem margræða og marga, ef hún á að vera skiljanleg eða gagnrýnin í
tengslum við lýðræðishugsun nútímans. En með þessar hugmyndir að leiðarljósi
er áhugavert að skoða, að lokum, hvernig, og hvort, þessara hugmynda kann að
gæta í verkum íslenskra listamanna í samtíðinni; hvort listsköpun getur leitt í ljós
mögulegar leiðir í til einhverrar annarrar skipanar en þeirrar borgaralegu.
Það fyrsta sem er áhugavert að skoða er verk Hlyns Hallsonar sem hann gerði
í Marfa í Texas árið og lýst var hér í upphafi. Verkið var sýnt í gömlu verk-
smiðjurými í bænum og samanstóð af Mórum textum sem Hlynur hafði spraut-
umálað á vegg sýningarsalarins: )e real axis of evil are Israel, USA and the UK
– Ariel Sharon is the top terrorist – George W. Bush is an idiot – And Iceland is banana
republic number one. Hann skrifaði setningarnar bæði á ensku og spænsku. Hlyn-
ur rakti að setningarnar hefði hann fundið að mestu í evrópskum Mölmiðlum, í
mótmælaumræðu um Bandaríkin. Verkið vakti hörð viðbrögð í bænum og margir
mótmæltu verkinu og birtingu þess. Eftir talsverða umræðu var Hlynur beðinn
um að hylja glugga gallerísins en í stað þess ákvað Hlynur að breyta verkinu og
gera nýja útgáfu af því. Eftir breytingu hljóðuðu yrðingarnar svona: )e Axis of
Evil is North Korea, Iraq and Iran – Osama bin Laden is the top terrorist – George
W. Bush is a good leader – And Iceland is not a banana republic. Málið vakti nokkra
athygli, sem leiddi að lokum til þess að Jim Yardley, blaðamaður New York Times,
rannsakaði málið og birti um það grein í blaðinu þar sem hann lýsti viðburðum
og ræddi við hlutaðeigandi um málavöxtu. Hann tók sérstaklega til þess hvernig
verkið birti afstöðu gróinna bæjarbúa til hins nýja listasamfélags sem tekið hafði
sér bólfestu í bænum í tengslum við Oe Chianti Foundation sem naum hyggju-
listamaðurinn Donald Judd stóð fyrir. Afstaða þeirra, sem sást berlega í viðbrögð-
um við verki Hlyns, var sú að listafólkið kæmi gjarnan fram af stærilæti við al-
menning í bænum. Þetta kom sérstaklega vel fram eftir að Hlynur breytti verki
sínu til þess að, eins og hann lýsti því, túlka betur sjónarmið bæjarbúa. Fólk hafði
orðið hneykslað yfir því hvernig verkið birtist í upphaflegri útgáfu; því fannst
hinsvegar síðari útgáfan gera lítið úr sér og vitsmunum sínum. Í stað hneykslunar
vegna fyrri útgáfunnar var komin óánægja með það að Hlynur teldi skoðanir fólks
vera eins einfaldar og síðari útgáfan bar með sér.32
Verk Hlyns var afar blátt áfram, í báðum útgáfum. Í þeirri fyrri sagðist hann
vera að lýsa almennum skoðunum og gagnrýni á afstöðu Bandaríkjamanna frá
Hér er byggt á túlkun Jims Yardley í New York Times, en Yardley var einn af helstu fréttaskýr-
endum blaðsins á sviði alþjóðamála (Yardley ).
Hugur 2013-4.indd 68 23/01/2014 12:57:26